Fræðslu- og frístundamál vinnuskjal

Málsnúmer 2609106

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 165. fundur - 01.10.2026

Fyrir liggja fyrstu drög að vinnuskjali vegna framtíðar stefnumótunar í fræðslu- og frístundamálum Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn ræddu framtíðarsýn og möguleika á að efla og auka fjölbreytni í frístundastarfi barna og ungmenna í Fjallabyggð. Meðal annars var rætt um að nýta betur þekkingu og hæfileika skapandi fólks í samfélaginu til námskeiðahalds, mögulegt samstarf við ýmsa aðila sem bjóða upp á afþreyingu og tómstundastarf.

Nefndin telur mikilvægt að kortleggja með skýrum hætti hvaða frístunda- og tómstundastarf er í boði, hver þátttakan er og hvernig frístundastyrkur sveitarfélagsins nýtist og dreifist milli ólíkra greina og starfsemi. Jafnframt verði skoðað hvaða afþreying og námskeið eru í boði í nágrannasveitarfélögum og hvort tækifæri séu til samstarfs eða til að byggja upp sambærilegt framboð í Fjallabyggð.

Lagt er til að kallað verði eftir samtali við þá aðila sem nú þegar standa að íþrótta-, frístunda- og tómstundastarfi fyrir börn og ungmenni og niðurstöðurnar nýttar við áframhaldandi stefnumótun nefndarinnar.