Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

160. fundur 20. apríl 2026 kl. 16:15 - 18:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Karen Sif Róbertsdóttir Varamaður
  • Jakob Kárason varaformaður
  • Sandra Finnsdóttir aðalm.
  • Katrín Freysdóttir aðalm.
  • Bryndís Þorsteinsdóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs

1.Húsnæðismál Leikskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 2411089Vakta málsnúmer

Viðbygging við Leikhóla.
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn fóru á Leikhóla í Ólafsfirði til að kynna sér og skoða gámana sem verið er að klára frágang á og verða vonandi teknir í notkun í lok þessarar viku eða í byrjun þeirrar næstu. Kristín María leikskólastjóri og Björk deildarstjóri tóku á móti hópnum og fóru yfir hvernig þessi viðbót myndi nýtast í starfinu.

2.Stefnur og verkferlar

Málsnúmer 2604040Vakta málsnúmer

Forstöðumaður íþróttamiðstöðvar kom á fundinn og fór yfir verkferla í íþróttahúsinu.
Lagt fram til kynningar
Skarphéðinn, forstöðumaður íþróttamiðstöðva, kom á fundinn og fór yfir verklag og aðstöðu vegna kynhlutlausra klefa. Nefndin felur Skarphéðni að vinna verklagsreglur fyrir starfsfólk íþróttamiðstöðvanna.

3.Uppsögn á starfi skólastjóra TÁT

Málsnúmer 2604037Vakta málsnúmer

Skólastjóri Tónlistarskólans á Tröllaskaga (TÁT) hefur sagt upp störfum.
Lagt fram til kynningar
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Tröllaskaga hefur sagt upp störfum. Magnús hefur verið skólastjóri TÁT frá upphafi 2016 þegar tónlistarskólarnir í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð sameinuðust.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Magnúsi fyrir einstakt framlag í þágu tónlistarnáms í tónskólum byggðarlaganna og óskar honum velfarnaðar.

4.Ókeypis stafrænt námsefni í stærðfræði og upplýsingatækni aðgengilegt á sex tungumálum

Málsnúmer 2604038Vakta málsnúmer

Ókeypis stafrænt námsefni í stærðfræði fyrir börn 5 - 8 ára.
Lagt fram til kynningar
Háskóli Íslands samstarfsaðili í Atollo-verkefninu, ásamt samstarfsaðilum víðs vegar um Evrópu kynna Atollo-námsefnið sem nú er aðgengilegt almenningi.

Atollo-námsefnið býður upp á fjölbreytt stafrænt námsefni sem er skipt upp í fjögur námsstig, ætlað nemendum á aldrinum 5-8 ára. Námsefnið hentar einnig nemendum með sérhæfðar stuðningsþarfir á ýmsum aldri. Efnið býður upp á stærðfræði- og upplýsingatæknifærni og hentar til notkunar í skólastofum án aðgreiningar, í sérkennslu og heima með stuðningi fullorðinna.
Fræðslu- og frístundanefnd hvetur kennara GF til að kynna sér þetta efni.

Námsefnið er aðgengilegt á: atolloproject.eu/resource-library og býður upp á gagnvirkt, stafrænt námsefni sem er á sex tungumálum: búlgörsku, króatísku, ensku, þýsku, íslensku og norsku. Efnið er hýst á IZZI-vefsvæðinu, krefst hvorki skráningar né greiðslu.

5.Betri íslenska í starfi - kynning á námsleiðum HÍ

Málsnúmer 2604036Vakta málsnúmer

Betri íslenska í starfi. Kynning á námsleiðum.
Lagt fram til kynningar
Undanfarin ár hafa orðið örar lýðfræðilegar breytingar á Íslandi. Stór hluti fólks á Íslandi hefur íslensku ekki að móðurmáli. Flestir eru þeirrar skoðunar að íslenska sé mikilvæg í íslensku samfélagi. Er því mikilvægt að boðið sé upp á fjölbreytt og gott nám í íslensku sem öðru máli.
Háskóli Íslands býður uppá slíkt nám sem fólk er hvatt til að kynna sér og verða auglýsingar settar í Samkaup og á vefsíðu Fjallabyggðar.

6.Ályktun ungmennaþings SSNE

Málsnúmer 2604035Vakta málsnúmer

Ályktun fulltrúa ungmennaþings SSNE
Lagt fram til kynningar
Fulltrúar úr Ungmennaráði Fjallabyggðar tóku þátt í Ungmennaþingi SSNE í liðinni viku og gerðu góðan róm að. Meðfylgjandi er ályktun sem ungmennaþingið sendi frá sér og er sveitarstjórnarfólk hvatt til þess að horfa til þess sem þar kemur fram fyrir komandi kosningar.

7.Íslensku menntaverðlaunin 2026

Málsnúmer 2604034Vakta málsnúmer

Beiðni um tilnefningu vegna íslensku menntaverðlaunanna
Lagt fram til kynningar
Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur skólanefndir sveitarfélaga eindregið til að senda inn tillögur til tilnefninga til Íslensku menntaverðlaunanna.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbóta. Verðlaunin eru veitt árlega á
Bessastöðum. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum, auk sérstakrar hvatningar til aðila sem stuðlað hafa að framúrskarandi menntaumbótum.
Fólk í samfélaginu er hvatt til að senda inn tilnefningar.

Lagt fram til kynningar.

8.Frístundamál barna með sérþarfir

Málsnúmer 2603042Vakta málsnúmer

Vegna frístundarmála barna með sérþarfir.
Lagt fram til kynningar
Erindi frá þrem starfsmönnum Grunnskóla Fjallabyggðar þar sem hvatt er til þess að börn með miklar sérþarfir sé betur mætt þegar kemur að frístund sem er eftir hefðbundinn skóladag. Þessi börn eigi ekki alltaf samleið í hefðbundnu frístundastarfi og nauðsynlegt sé að reyna að aðlaga starfið betur að þeirra þörfum.
Nefndin þakkar fyrir ábendingarnar og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

9.Samstarf MTR og GF

Málsnúmer 2604039Vakta málsnúmer

Fyrstu skref spretthóps um skipulag starfsstöðva Grunnskóla Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar
Eins og sviðsstjóri lagði til þá hefur verið stofnaður hópur sem hefur hist tvisvar nú þegar.

Hugmyndir um færslu 10. bekkjar yfir í MTR voru ræddar og ýmis mál því tengd. Með slíkum flutningum kæmi 5. bekkur til með að flytjast yfir á Tjarnarstíg og sameinast miðstiginu þar. Rætt um möguleika og tækifæri og að hverju þyrfti að huga. Allir sammála um að mjög knappur tími sé til stefnu til að framkvæma þetta svo vel megi vera fyrir næsta skólaár.
Ýmsar hugmyndir að samstarfi ræddar og hvernig hægt væri að vinna að farsælu samstarfi næsta vetur sem myndi svo leiða til þess að 5. og 10. bekkur flyttist yfir haustið 2027.

Hugmyndir voru kynntar á fundi starfsmanna í báðum skólum og var vel tekið í þær.
Kolbrún, kennari við MTR, kynnti fyrir kennurum GF rannsóknarverkefni sem hún er að vinna að varðandi samstarf skólanna og tækifæri sem skólafólk sæi fyrir sér í því samhengi. Hún fór yfir rannsóknarspurningar sínar sem passa vel við það starf sem framundan er í vinnu hópsins.
Hugmynd er að kennarar á unglingastigi og í MTR fari saman í SVÓT greiningu um miðjan maí til að undirbúa framhaldið.

Fundi slitið - kl. 18:15.