Uppsögn á starfi skólastjóra TÁT

Málsnúmer 2604037

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 160. fundur - 20.04.2026

Skólastjóri Tónlistarskólans á Tröllaskaga (TÁT) hefur sagt upp störfum.
Lagt fram til kynningar
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Tröllaskaga hefur sagt upp störfum. Magnús hefur verið skólastjóri TÁT frá upphafi 2016 þegar tónlistarskólarnir í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð sameinuðust.
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Magnúsi fyrir einstakt framlag í þágu tónlistarnáms í tónskólum byggðarlaganna og óskar honum velfarnaðar.