Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

84. fundur 06. apríl 2020 kl. 16:30 - 18:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Hólmar Hákon Óðinsson varaformaður I lista
  • Gauti Már Rúnarsson aðalmaður, D lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir aðalmaður, I lista
  • Diljá Helgadóttir aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála

1.Staðan í leikskóla á tímum Covid-19

Málsnúmer 2004010Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Olga Gísladóttir skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar. Skólastjóri leikskólans fór yfir stöðuna og starfið í leikskólanum frá upphafi samkomubanns.

2.Staðan í grunnskóla á tímum Covid-19

Málsnúmer 2004011Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sátu Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar og Halldóra María Elíasdóttir fulltrúi kennara. Skólastjóri grunnskólans fór yfir stöðuna og starfið í grunnskólanum frá upphafi samkomubanns.

3.Grunnskóli Fjallabyggðar, foreldrakönnun 2020

Málsnúmer 2003057Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sátu Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar og Halldóra María Elíasdóttir fulltrúi kennara.
Niðurstöður foreldrakönnunar Skólapúlsins 2020 lagðar fram til kynningar. Könnunin var lögð fyrir foreldra grunnskólabarna í febrúar 2020. Skólastjóri fór yfir niðurstöðurnar.

4.Niðurstöður Olweuskönnunar 2019

Málsnúmer 2003067Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sátu Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar og Halldóra María Elíasdóttir fulltrúi kennara.
Niðurstöður eineltiskönnunar Olweusar 2019 lagðar fram til kynningar. Könnunin var lögð fyrir 5.-10. bekk í lok nóvember 2019. Þátttaka var 99%. Skólastjóri fór yfir niðurstöðurnar. Einelti í Grunnskóla Fjallabyggðar mælist 4,5% í könnuninni. Einelti í Olweusarskólum á Íslandi mælist 6,1%. Eineltisteymi skólans vinnur úr niðurstöðum með nemendum og starfsmönnum skólans.

Fundi slitið - kl. 18:00.