Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

65. fundur 14. janúar 2019 kl. 16:30 - 18:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Hólmar Hákon Óðinsson varaformaður I lista
  • Gauti Már Rúnarsson aðalmaður, D lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir aðalmaður, I lista
  • Diljá Helgadóttir aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála
Á fundinn mættu einnig fulltrúar eftirfarandi hópa: Bæjarfulltrúar, skólaráð Grunnskóla Fjallabyggðar og stjórn Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar. Fulltrúar kennara og foreldra Grunnskóla Fjallabyggðar í fræðslu- og frístundanefnd mættu einnig á fundinn.

1.Sérfræðiráðgjöf við Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1811092Vakta málsnúmer

Gestir fundarins voru þau Kristrún Lind Birgisdóttir og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, ráðgjafar frá Tröppu ráðgjöf. Samningur hefur verið gerður við Tröppu ráðgjöf ehf um sérfræðiráðgjöf við Grunnskóla Fjallabyggðar. Megináhersla ráðgjafarinnar er framkvæmd á skólastefnu sveitarfélagsins og endurgerð á skólanámaskrá, sýn og stefnu grunnskólans með það fyrir augum að í daglegu starfi skólans endurspeglist starf í anda nýrrar fræðslustefnu Fjallabyggðar, núgildandi aðalnámskrár og ríkjandi menntastefnu í landinu - menntun án aðgreiningar. Í samkomulagi Tröppu ráðgjafar og Fjallabyggðar verður unnið eftir sýn um framúrskarandi skóla þar sem gert er ráð fyrir að ná árangri umfram væntingar. Áhersla verður lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Kristrún Lind og Gunnþór kynntu ráðgjöfina fyrir fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 18:15.