Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

56. fundur 20. júní 2018 kl. 16:00 - 17:25 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Hólmar Hákon Óðinsson varaformaður I lista
  • Gauti Már Rúnarsson aðalmaður, D lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir aðalmaður, I lista
  • Diljá Helgadóttir aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála

1.Drengskaparheit um þagnarskyldu 2018 - 2022

Málsnúmer 1806015Vakta málsnúmer

Nefndarmenn undirrituðu drengskaparheit um þagnarskyldu með vísan í 28. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011

2.Erindisbréf nefnda 2018-2022

Málsnúmer 1806062Vakta málsnúmer

Farið var yfir erindisbréf Fræðslu- og frístundanefndar. Fundartími nefndarinnar verður fyrsti mánudagur í hverjum mánuði að jafnaði, kl. 16.30.

3.Vinnuskóli 2018

Málsnúmer 1805073Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamannvirkja.

Forstöðumaður fór yfir og kynnti starfsemi vinnuskólans fyrir nefndarmönnum. 35 unglingar hafa sótt um vinnu í vinnuskólanum í sumar í mislangan tíma hver.
Unglingar fæddir árið 2004 fá vinnu hálfan daginn en eldri unglingar fá vinnu allan daginn. Áætlað er að unglingar fæddir árið 2004 vinni til 3. ágúst en eldri unglingar til 10. ágúst.

4.Smíðavellir 2018

Málsnúmer 1806059Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamannvirkja.

Smíðavellir verða starfræktir í báðum byggðarkjörnum á tímabilinu 11.júlí - 30.júlí þrisvar í viku kl. 10 - 12 fyrir 9 -12 ára börn.
Umsjón verður í höndum vinnuskólans undir stjórn yfirmanns vinnuskólans. Starf og nánara fyrirkomulag verður auglýst þegar nær dregur.

Fundi slitið - kl. 17:25.