Félagsmálanefnd Fjallabyggðar

80. fundur 08. maí 2014 kl. 14:30 - 14:30 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Rögnvaldur Ingólfsson formaður
  • Margrét Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Guðrún Árnadóttir aðalmaður
  • Hjörtur Hjartarson deildarstjóri fjölskyldudeildar
  • Helga Helgadóttir starfsmaður félagsþjónustu
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson deildarstjóri fjölskyldudeildar

1.Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 1405011Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd leggur til við bæjaryfirvöld að leiguíbúð nr. 113 í Skálarhlíð, verði skilgreind sérstaklega sem búsetuúrræði fyrir fatlaða. Hér er átt við fatlaða fullorðna einstaklinga sem eru á biðlista eftir búsetu við hæfi í Fjallabyggð og eiga á rétt á sértækri þjónustu í skilningi laga nr. 59/1992 um málefni fatlaða.
Við úthlutun íbúðarinnar verði í megin atriðum farið eftir reglum um úthlutun leiguíbúða á vegum bæjarfélagsins en auk þess verði lagt mat á þjónustuþörf viðkomandi ásamt aldri fyrirliggjandi umsókna um búsetuþjónustu.

2.Félag eldri borgara Ólafsfirði, beiðni um styrk

Málsnúmer 1405013Vakta málsnúmer

Félag eldri borgara á Ólafsfirði hefur leitað eftir styrk til félagsþjónustunnar vegna reksturs á húseign félagsins að Bylgjubyggð 2b.
Félagsmálanefnd samþykkir styrkupphæð kr. 160.000.

3.Könnun á viðhorfi eldra fólks í Fjallabyggð

Málsnúmer 1307046Vakta málsnúmer

Umræður um þjónustukönnun meðal eldra fólks í Fjallabyggð. Niðurstöður könnunarinnar eru jákvæðar og er eldra fólk í bæjarfélaginu almennt ánægt með þjónustu bæjarfélagsins.
Hins vegar eru ýmis mál sem þarf að færa til betri vegar, sérstaklega það sem snýr að aðkomu bæjarfélagsins að félags- og tómstundastarfi eldra fólks, einkum í Ólafsfirði.
Nefndin lýsir ánægju sinni með framkvæmd könnunarinnar og störf þeirra sem að henni stóðu.

4.Trúnaðarmál, fjárhagsaðstoð

Málsnúmer 1403025Vakta málsnúmer

Erindi samþykkt.

5.Trúnaðarmál, fjárhagsaðstoð

Málsnúmer 1401038Vakta málsnúmer

Erindi samþykkt.

6.Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir drengi

Málsnúmer 1405014Vakta málsnúmer

Margrét Guðmundsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið. Fyrir liggur styrkbeiðni vegna sjálfstyrkingarnámskeiðs fyrir drengi í 5.-10. bekk grunnskólans.
Félagsmálanefnd samþykkir að veita kr. 60.000 styrk fyrir verkefnið.

7.Velferðarnefnd Alþingis

Málsnúmer 1404042Vakta málsnúmer

Deildarstjóri sagði frá heimsókn Velferðarnefndar Alþingis í Iðjuna á Siglufirði þann 28. mars síðast liðinn.

8.Rekstraryfirlit febrúar 2014

Málsnúmer 1404048Vakta málsnúmer

Rekstraryfirlit fyrir fyrstu tvo mánuði ársins lagt fram til kynningar. Niðurstaða fyrir félagsmál er 12,0 millj. kr. sem er 74% af áætlun tímabilsins sem var 16,3 millj. kr.

9.Fundagerðir þjónustuhóps 2014, málefna fatlaðs fólks á vestanverðu Norðurlandi

Málsnúmer 1402008Vakta málsnúmer

Fundargerðir þjónustuhóps málefna fatlaðra frá 5. febrúar og 25. mars 2014 lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:30.