Félagsmálanefnd Fjallabyggðar

40. fundur 31. mars 2010 kl. 11:00 - 12:00 sem fjarfundur í ráðhúsinu á Siglufirði og á bæjarskrifstofunum í Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Hörður Ólafsson aðalmaður
  • Ásdís Pálmadóttir aðalmaður
  • Margrét Guðmundsdóttir formaður
  • Sigurður Jóhannesson aðalmaður
  • Hjörtur Hjartarson félagsmálastjóri
  • Júlía Sæmundsdóttir Félagsráðgjafi
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson félagsmálastjóri

1.Myndun þjónustusvæðis á Norðurlandi vestra vegna yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitafélaga þann 1.janúar 2011

Málsnúmer 1003096Vakta málsnúmer

Samþykkt

Þann 1. janúar 2011 er áætlað að málefni fatlaðra færist frá ríki til sveitarfélaga samkvæmt samkomulagi þar um. Undirbúningur yfirfærslunnar hefur staðið um nokkurt skeið að hálfu ríkis og sveitarfélaga á vettvangi sérstakrar verkefnisstjórnar sem um málið fjallar. Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir að mynduð verði sérstök þjónustusvæði milli þeirra sveitarfélaga sem ekki telja átta þúsund íbúa og skuli þjónustusvæðið samanlagt ekki telja færri íbúa en átta þúsund.
Stjórn SSNV fjallaði um málið á fundi 9. mars sl. og leggur til að áfram verði rekið byggðasamlag um málaflokkinn á Norðurlandi vestra með dreifðri þjónustu. Fer stjórnin þess á leit við sveitarfélögin sem standa að byggðasamlagi um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra að þau staðfesti þátttöku í myndun þjónustusvæðis sem helgast af sveitarfélagsmörkum Bæjarhrepps, Húnaþings vestra, Húnavatnshrepps, Blönduósbæjar, Skagabyggðar, Sveitarfélagsins Skagastrandar, Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Akrahrepps og Fjallabyggðar.
Félagsmálanefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki ályktun stjórnar SSNV, um myndun þjónustusæðis á grunni þeirrar leiðar sem kölluð er ,,byggðasamlag með dreifðri þjónustu.

 

2.Umsókn um ferðastyrk

Málsnúmer 1002029Vakta málsnúmer

Samþykkt

Lögð fram beiðni um ferðastyrk fyrir fatlaðan nemanda.  Erindi samþykkt.

3.Afgreiðslur fjárhagsaðstoðar frá síðasta fundi

Málsnúmer 1003150Vakta málsnúmer

Staðfest

Félagsmálastjóri lagði fram yfirlit yfir afgreiðslur fjárhagsaðstoðar frá síðasta fundi nefndarinnar.

4.Trúnaðarmál, umsókn um styrki vegna sveitadvala

Málsnúmer 1003154Vakta málsnúmer

Samþykkt

Samþykkt.

5.Trúnaðarmál, fjárhagsaðstoð

Málsnúmer 1002122Vakta málsnúmer

Synjað

Erindi synjað.

6.Trúnaðarmál, fjárhagsaðstoð

Málsnúmer 1003036Vakta málsnúmer

Samþykkt

Samþykkt.

7.Starfsmannahald félagsþjónustunnar

Málsnúmer 1003153Vakta málsnúmer

Lagt fram

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir breytingum í starfsmannamálum félagsþjónustu.  Júlía Sæmundsdóttir, félagsráðgjafi hefur sagt starfi sínu lausu  og mun láta af störfum frá og með 31. maí næst komandi.  Lagt er til að áður en auglýst verður eftir nýjum starfsmanni verði fyrst unnin þarfagreining fyrir starfið, þar sem m.a. verði tekið tillit til væntanlegra breytinga á starfsumhverfi t.d. í kjölfar yfirfærslu málefna fatlaðra.

Fundi slitið - kl. 12:00.