Bæjarráð Fjallabyggðar

502. fundur 23. maí 2017 kl. 16:00 - 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Ríkharður Hólm Sigurðsson aðalmaður, S lista
  • Jón Valgeir Baldursson áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Framkvæmdir í umhverfismálum

Málsnúmer 1705055Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Ármann V. Sigurðsson, deildarstjóri tæknideildar.
Farið yfir framkvæmdir í umhverfismálum í Fjallabyggð árið 2017.

2.Flokkun ehf - uppsögn samnings

Málsnúmer 1705050Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Flokkunar Eyjafjarðar ehf. frá 16. maí 2017. Á fundinum var samþykkt að segja upp verksamningi um Seyrutæmingu og kölkun á seyru sem gerður var milli Sorpeyðingar Eyjafjarðar bs. og Gámaþjónustu Norðurlands ehf. þann 19. desember 2000. Flokkun Eyjafjarðar ehf. tók verkefnið yfir þegar byggðasamlagið Sorpeyðing Eyjafjarðar var lagt niður árið 2007.

3.Færsla ríkisstyrkja vegna framkvæmda

Málsnúmer 1705051Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða samgönguráðuneytisins þess eðlis, að styrkir verði áfram færðir til lækkunar á kostnaðarverði framkvæmda hjá höfnum.

4.Útboð Leikskálar, lóð

Málsnúmer 1704087Vakta málsnúmer

Opnun tilboða í 1. áfanga endurnýjunar á leikskólalóð, Leikskálum á Siglufirði.
Eftirfarandi tilboð barst: Sölvi Sölvason ehf., 10.864.900 kr. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 10.286.000 kr.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboðinu.

5.Beiðni um umsögn vegna umsóknar Sjómannafélags Ólafsfjarðar um tímabundið tækifærisleyfi

Málsnúmer 1705056Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dags. 11. maí 2017 um umsögn Fjallabyggðar um tækifærisleyfi til skemmtanahalds vegna dansleiks á vegum Sjómannafélags Ólafsfjarðar í menningarhúsinu Tjarnarborg, þar sem aldurstakmark er 16 ár, föstudaginn 9. júní 2017.
Bæjarráð samþykkir tækifærisleyfið fyrir sitt leyti.

6.Síldarævintýri 2017

Málsnúmer 1703017Vakta málsnúmer

Á fundi bæjarráðs þann 28. mars sl. var samþykkt að auglýst yrði eftir áhugasömum aðila til viðræðna við sveitarfélagið um framkvæmd Síldarævintýrisins 2017. Engin viðbrögð voru við auglýsingunni innan tímarammans. Síldarævintýri verður því ekki haldið árið 2017.

7.Málefni Hverfisgötu 17 Siglufirði

Málsnúmer 1506013Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Jóns Hrólfs Baldurssonar dags. 16. maí 2017 þar sem hann framselur boð sitt í húseignina Hverfisgötu 17, Siglufirði, fastanr. 213-0611.
Bæjarráð samþykkir að ganga inn í tilboð Jóns Hrólfs Baldurssonar. Bæjarráð vísar umsókn um niðurrif á húsinu til skipulags- og umhverfisnefndar.

8.Greið leið - Aðalfundur 2017

Málsnúmer 1705044Vakta málsnúmer

Aðalfundur Greiðrar leiðar verður haldinn mánudaginn 29. maí n.k. kl. 13, að Hafnarstræti 91, Akureyri. Fundarboð lagt fram til kynningar ásamt ársreikningi félagsins fyrir árið 2016.

9.Frá Nefndasviði Alþingis - 406. mál til umsagnar

Málsnúmer 1705052Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar frumvarp til laga um landgræðslu, 406. mál.
Lagt fram til kynningar.

10.Frá nefndasviði Alþingis - 407. mál til umsagnar

Málsnúmer 1705053Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar frumvarp til laga um skóga og skógrækt, 407. mál.
Lagt fram til kynningar.

11.Frá Nefndasviði Alþingis - 408. mál til umsagnar

Málsnúmer 1705054Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða, 408. mál.
Lagt fram til kynningar.

12.Fundargerðir stjórnar Eyþings 2017

Málsnúmer 1701008Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 295. fundar stjórnar Eyþings, dags. 15. maí 2017.

Fundi slitið - kl. 17:00.