Bæjarráð Fjallabyggðar

315. fundur 18. október 2013 kl. 08:15 - 10:15 í Ráðhúsinu Gránugötu 24 Siglufirði
Nefndarmenn
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Ólafur Helgi Marteinsson varamaður
  • Ingvar Erlingsson varamaður
  • Sigurður V Ásbjarnarson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Fjárhagsáætlun 2014 og 2015 - 2017

Málsnúmer 1304016Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að ramma fyrir fjárhagsáætlun.

Fram komu ábendingar og er starfsmönnum falið að leggja svo breytta áætlun fyrir fund bæjarráðs, með bæjarfulltrúum n.k. mánudag kl. 12.00.

2.Kynning á embætti umboðsmanns barna

Málsnúmer 1310007Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 23. september 2013 frá umboðsmanni barna þar sem embættið er kynnt.

3.Skýrslur um fasteignamat 2014 og brunabótamat 2013

Málsnúmer 1310020Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla frá Þjóðskrá Íslands um fasteignamat 2014 og brunabótamat 2013.

Fundi slitið - kl. 10:15.