Bæjarráð Fjallabyggðar

928. fundur 13. ágúst 2026 kl. 08:15 - 10:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Jóhann K. Jóhannsson varaformaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa 2026-2030

Málsnúmer 2608016Vakta málsnúmer

Skv. 29. gr. laga um sveitarstjórnir skulu sveitarstjórnir setja sér siðareglur og skv. sömu grein skipar Samband íslenskra sveitarfélaga nefnd sem veitir álit um siðareglur og um ætluð brot á þeim. Ef siðareglur eru í gildi skal ný sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til endurskoðunar þeirra. Í samræmi við 29.gr. laga um sveitarstjórnir liggja fyrir drög að uppfærðum siðareglum kjörinna fulltrúa Fjallabyggðar.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Bæjarráð telur ekki þörf á breytingu á framlögðum siðareglum og vísar þeim til samþykktar og undirritunar í bæjarstjórn.

2.Heimsókn bæjarstjórnar Akureyrar 2026

Málsnúmer 2608010Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá forseta bæjarstjórnar Akureyrar þar sem kannaður er áhugi á því að bæjarstjórn Fjallabyggðar taki á móti bæjarstjórn Akureyrar í heimsókn föstudaginn 28.ágúst n.k. frá kl 12:30 - 13:30.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar forseta bæjarstjórnar Akureyrar fyrir erindið varðandi vináttuheimsókn til Fjallabyggðar í lok ágúst og býður bæjarstjórn Akureyrar velkomna í Fjallabyggð.

3.Ósk um upplýsingar vegna framkvæmda Seguls við Vetrarbraut.

Málsnúmer 2608001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Valgeiri T. Sigurðssyni þar sem óskað er eftir upplýsingum er varða veitingu byggingarleyfis vegna viðbyggingar við starfsemi Seguls við Vetrarbraut á Siglufirði.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar Valgeiri fyrir erindið og óskar eftir að sviðsstjóri Skipulags- og framkvæmdasviðs svari erindinu.

4.Vatnsleki í Héðinsfjarðargöngum

Málsnúmer 2105079Vakta málsnúmer

Fyrir liggur undirskriftarlisti frá um 400 íbúum Fjallabyggðar og öðrum notendum þar sem kallað er eftir aðgerðum Vegagerðar vegna áralangs vatnsleka í Ólafsfjarðarhluta Héðinsfjarðarganga. Formaður bæjarráðs tók á móti undirskriftarlistum frá Hjördísi Hjörleifsdóttur sem var ein að þeim sem stóð fyrir þessari söfnun undirskrifta.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarstjóra er falið að koma á fundi bæjarráðs og Vegagerðarinnar þar sem þessu máli verður formlega komið á framfæri.

5.Afstaða til loðdýraræktar í aðalskipulagi

Málsnúmer 2608014Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Samtökum um dýravelferð þar sem hvatt er til þess að banna loðdýrarækt innan sveitarfélagsins í aðalskipulagi.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Aðalfundur og ársreikningur 2025 leigufélagsins Bríetar ehf.

Málsnúmer 2608009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð á aðalfund Leigufélagsins Bríetar ehf. er fram fer þann 18.ágúst n.k.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Heimsókn um borð í skemmtiferðaskipið Aida Luna 2026

Málsnúmer 2608012Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Anitu Elefsen f.h. Cruise Iceland, þar sem bæjarstjórn og fleiri aðilum er boðið í heimsókn um borð í skemmtiferðaskipið AIDA Luna sem verður við höfn á Akureyri þann 27.ágúst n.k. Tilgangur heimsóknarinnar er að bjóða hagsmunaaðilum á Íslandi til heimsóknar um borð og kynna starfsemina, bæði á sjó og í landi.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og telur það mikilvægt að Fjallabyggð og aðrir hagsmunaaðilar nýti sér þetta boð þann 27. ágúst. n.k.
Þess má einnig geta að í dag er skemmtiferðaskipið Valiant Lady frá Virgin Voyages að koma í fyrsta sinn til Siglufjarðar og hafa fulltrúar frá Fjallabyggð þegið boð um að koma um borð og vera viðstaddir plattaskipti.

8.Samgöngur og skipulag

Málsnúmer 2608011Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Vegagerðinni þar sem minnt er á mikilvægi samráðs í tengslum við endurskoðun aðalskipulags og aðra skipulagsvinnu. Erindið er sent til kynningar fyrir nýja fulltrúa í bæjarstjórn, nefndum og ráðum.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar Vegagerðinni fyrir erindið og þau mál sem þar koma fram m.a. umferðaröryggisáætlunina sem þarf að fara í endurskoðun. Erindið fer einnig fyrir skipulags- og umhverfisnefnd síðar í dag.

9.Launayfirlit tímabils - 2026

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi yfirlit launakostnaðar fyrir fyrstu 7 mánuði ársins 2026. Áfallinn launakostnaður er 91,6% af tímabilsáætlun.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:15.