Siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa 2026-2030

Málsnúmer 2608016

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 928. fundur - 13.08.2026

Skv. 29. gr. laga um sveitarstjórnir skulu sveitarstjórnir setja sér siðareglur og skv. sömu grein skipar Samband íslenskra sveitarfélaga nefnd sem veitir álit um siðareglur og um ætluð brot á þeim. Ef siðareglur eru í gildi skal ný sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til endurskoðunar þeirra. Í samræmi við 29.gr. laga um sveitarstjórnir liggja fyrir drög að uppfærðum siðareglum kjörinna fulltrúa Fjallabyggðar.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Bæjarráð telur ekki þörf á breytingu á framlögðum siðareglum og vísar þeim til samþykktar og undirritunar í bæjarstjórn.