Bæjarráð Fjallabyggðar

633. fundur 20. desember 2019 kl. 08:15 - 09:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála

1.Vinnuhópur vegna gervigrasvallar í Ólafsfirði

Málsnúmer 1911058Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir að setja á laggirnar vinnuhóp vegna framkvæmda við gervigrasvöll í Ólafsfirði sem í sitja bæjarstjóri, deildarstjóri tæknideildar og tveir fulltrúar úr stjórn KF.

2.Aðgerðaráætlun vegna óveðurs í Fjallabyggð

Málsnúmer 1912027Vakta málsnúmer

Á 632. fundi bæjarráðs óskaði ráðið eftir að fá greinargerð frá viðbragðsaðilum, björgunarsveitum, slökkviliði, lögreglu, Rauða krossinum, HSN, þjónustumiðstöð og öðrum stofnunum bæjarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir að fresta málinu til næsta fundar þar sem greinargerðir hafa ekki borist frá öllum aðilum.

3.Trúnaðarmál- starfsmannamál

Málsnúmer 1912005Vakta málsnúmer

Niðurstaða bæjarráðs færð í trúnaðarbók.

4.Styrkur til björgunarsveita vegna óveðurs í desember 2019

Málsnúmer 1912048Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkir eftirfarandi bókun:

Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur ákveðið að styrkja björgunarsveitirnar Stráka og Tind um kr. 1.500.000 hvora sveit. Bæjarstjórn þakkar enn og aftur björgunarsveitunum fyrir mikið og óeigingjarnt starf við björgunarstörf á meðan að óveðrið gekk yfir.

Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 20/2019 að upphæð kr. 3.000.000 við deild 07810, lykill 9291 og að honum sé mætt með lækkun á handbæru fé við fjárhagsáætlun 2019.

5.Til upplýsingar - frumvarpsdrög í Samráðsgátt (fjarskipti)

Málsnúmer 1912033Vakta málsnúmer


Lagt fram til kynningar erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu dags. 10.12.2019 þar sem fram kemur að drög að frumvarpi til nýrra fjarskiptalaga hafa verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drögin, eigi síðar en 6. janúar 2020.

6.Ný umferðarlög - taka gildi janúar 2020

Málsnúmer 1912039Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Samgöngustofu, dags. 16.12.2019 er varðar samantekt Samgöngustofu á þeim breytingum sem gerðar hafa verið í nýjum umferðarlögum sem samþykkt hafa verið á Alþingi og taka gildi nú um áramót. Samantektina má nálgast á vef Samgöngustofu https://www.samgongustofa.is/umferd/fraedsla/ny-umferdarlog/

7.Almanna- og öryggishagsmunir verði ávallt hafðir í fyrirrúmi

Málsnúmer 1912042Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 13.12.2019 og varðar ályktun stjórnar sambandsins frá 13.12.2019 þess efnis að Almanna- og öryggishagsmunir verði ávallt hafðir í fyrirrúmi:
Ályktun stjórnar er eftirfarandi.

„Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga sendir stjórnendum sveitarfélaga og íbúum þeirra sem nú glíma við afleiðingar óveðursins kveðju, um leið og hún þakkar björgunaraðilum, starfsmönnum veitufyrirtækja og öðrum sem tekið hafa þátt í viðbrögðum við afleiðingum þess óveðurs sem dunið hefur á landinu undanfarna daga. Stjórnin hvetur ríkisstjórn Íslands, Alþingi, Landsnet og veitufyrirtæki til að gera allt sem í valdi þeirra stendur til að tryggja raforkuöryggi um allt land sem allra fyrst. Það er með öllu óásættanlegt að stór hluti íbúa landsbyggðarinnar búi við slíkt óöryggi sem raunin er. Stjórnvöldum ber skylda til að haga málum þannig að almanna- og öryggishagsmunir verði ávallt hafðir í fyrirrúmi við uppbyggingu og rekstur innviða sem eiga að tryggja öryggi og jöfn búsetuskilyrði allra landsmanna“.

Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

8.Frá nefndasviði Alþingis - 434. og 435. mál til umsagnar

Málsnúmer 1912024Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 09.12.2019 er varðar umsögn um tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024, 434. mál og tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2034, 435. mál.

9.Frá nefndasviði Alþingis - 436. mál til umsagnar

Málsnúmer 1912023Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis er varðar umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum (viðaukar). 436. mál.

10.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2019

Málsnúmer 1901004Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir
24. fundar Ungmennaráðs Fjallabyggðar frá 16. 12.2019
10. fundur Stýrihóps heilsueflandi samfélags frá 18.12.2019

Fundi slitið - kl. 09:00.