Bæjarráð Fjallabyggðar

548. fundur 20. mars 2018 kl. 12:00 - 12:45 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður, S lista
  • Jón Valgeir Baldursson áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Vettvangsliðateymi í Ólafsfirði

Málsnúmer 1802013Vakta málsnúmer

Fulltrúar björgunarsveitarinnar Tinds, Tómas Atli Einarsson og Lára Stefánsdóttir mættu á fund bæjarráðs.

Komið hefur fram að heilbrigðisráðherra ætli ekki að stíga inn í ákvörðun forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norðurlands samkvæmt tölvupósti frá 19. mars 2018.

Bæjarráð styður að vettvangsliðateymi verði komið á fót í Ólafsfirði til að stuðla að auknu öryggi íbúa Fjallabyggðar. Bæjarráð mun halda áfram baráttu sinni fyrir því að sjúkrabíll verði í Ólafsfirði og vísar til bókana og samtala við fulltrúa ráðuneytisins um þetta mál.

2.Samþykkt um öldungaráð Fjallabyggðar

Málsnúmer 1710091Vakta málsnúmer

Tekin fyrir tillaga frá fulltrúum í öldungarráði að breyttri samþykkt fyrir öldungarráð.

Bæjarráð þakkar fyrir góðar ábendingar en samþykkir að verða ekki við ábendingunum og vísar til bæjarmálasamþykktar sveitarfélagsins frá 23. janúar 2018.

3.Styrktarsjóður EBÍ 2018

Málsnúmer 1802096Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn deildarstjóra tæknideildar til styrktarsjóðs EBÍ, þar sem óskað er eftir styrk til byggingu á fuglaskoðunarhúsi við Leirurnar á Siglufirði.

4.Lagfæring á steinkanti og girðingu

Málsnúmer 1803049Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi íbúa við Hvanneyrarbraut 52 vegna skemmda á steinkanti og girðingu af völdum snjómoksturstækja.

Óskað hefur verið eftir því að verktakinn lagfæri steinkantinn og girðinguna án árangurs.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra að ræða við verktakann, Bás ehf., og afgreiða málið.

5.Nordjobb sumarstörf 2018

Málsnúmer 1803037Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Nordjobb, þar sem óskað er eftir því að Fjallabyggð bjóði tveimur starfsmönnum sumarvinnu.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

6.Úttektir slökkviliða 2017, Fjallabyggð

Málsnúmer 1803039Vakta málsnúmer

Tekin fyrir úttekt Mannvirkjastofnunar á Slökkviliði Fjallabyggðar árið 2017.

Bæjarráð óskar eftir því að slökkviliðsstjóri mæti á fund bæjarráðs og fari yfir úttektina.

7.Tillaga til þingsályktunar um byggðaáætlun

Málsnúmer 1803040Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu vegna tillögu til þingsályktunar um byggðaáætlun 2018-2024. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 21. mars n.k..

8.Til umsagnar 114.mál frumvarp til laga um almenn hegningarlög (bann við umskurði drengja)

Málsnúmer 1803036Vakta málsnúmer

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um almenn hegningarlög (bann við umskurði drengja), 114. mál.

9.Til umsagnar 339.mál frumvarp til laga um Þjóðskrá Íslands

Málsnúmer 1803038Vakta málsnúmer

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Þjóðskrá Íslands, 339. mál.

10.Nýr kjarasamningur við Félag grunnskólakennara undirritaður

Málsnúmer 1803043Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar undirritaður kjarasamningur Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara. Niðurstaða í atkvæðagreiðslu félagsmanna Félags grunnskólakennara mun liggja fyrir 21. mars n.k..

11.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2018

Málsnúmer 1801013Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 95. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 16. mars 2018.

Fundi slitið - kl. 12:45.