Bæjarráð Fjallabyggðar

545. fundur 06. mars 2018 kl. 12:00 - 13:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður, S lista
  • Jón Valgeir Baldursson áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Málefni fatlaðra 2018

Málsnúmer 1802078Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er varða drög að reglugerð um framlög vegna þjónustu við fatlað fólk 2018.
Hjörtur Hjartarson deildarstjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið.

2.Samningur um Hús eldri borgara í Ólafsfirði 2018

Málsnúmer 1801099Vakta málsnúmer

Hjörtur Hjartarson deildarstjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið.

Lögð fram drög að samstarfssamningi um Hús eldri borgara í Ólafsfirði. Fjallabyggð hefur nú afnot af húsinu á virkum dögum vegna dagþjónustu við eldri borgara.

Bæjarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti.

3.Trúnaðarmál - Starfsmannamál

Málsnúmer 1803006Vakta málsnúmer

Niðurstaða færð í trúnaðarbók.

4.Trúnaðarmál - Starfsmannamál

Málsnúmer 1802098Vakta málsnúmer

Niðurstaða færð í trúnaðarbók.

5.Sjókvíaeldi

Málsnúmer 1704014Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf bæjarstjóra til Hafrannsóknarstofnunar.
Í bréfinu er óskað eftir upplýsingum um burðarþol og áhættumat fyrir sjókvíaeldi í Eyjafirði.

6.Tímavinna fyrir Fjallabyggð - Vélar og tæki

Málsnúmer 1502078Vakta málsnúmer

Deildarstjóri tæknideildar óskar eftir samþykki bæjarráðs til þess að framlengja samninga vegna tímavinnu véla og tækja fyrir Fjallabyggð um eitt ár. Heimilt er samkvæmt samningum að framlengja til eins árs í senn tvisvar sinnum.

Bæjarráð samþykkir beiðnina.

7.Launayfirlit tímabils - 2018

Málsnúmer 1801031Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar launayfirlit fyrir tímabilið 1. janúar - 28. febrúar 2018.

8.Trúnaðarmál - fasteignagjöld

Málsnúmer 1802102Vakta málsnúmer

Niðurstaða færð í trúnaðarbók.

9.Til umsagnar 90. mál - tillaga til þingsályktunar um bætta stjórnsýslu í umgengnismálum

Málsnúmer 1802099Vakta málsnúmer

Velferðarnefnd Alþings sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um bætta stjórnsýslu í umgenginsmálum, 90. mál.
Lagt fram til kynningar.

10.Til umsagnar 179. mál - tillaga til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku

Málsnúmer 1802100Vakta málsnúmer

Atvinnuveganefnd Alþings sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfa raforku, 179. mál.
Lagt fram til kynningar.

11.Til umsagnar 190. mál - Frumvarp til sveitarstjórnarlaga (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn)

Málsnúmer 1802104Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 190. mál.
Lagt fram til kynningar.

12.Aðalfundur Samorku - 2018

Málsnúmer 1803004Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð vegna aðalfundar Samorku 2018, sem haldinn verður 6. mars nk. á Hótel Hilton í Reykjavík.

13.Könnun vegna gatnagerðargjalda

Málsnúmer 1803003Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga að beiðni samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi könnun vegna gatnagerðargjalda.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar úrvinnslu málsins.

14.Vegna kynnisferða á Vestnorden Travel Mart á Akureyri í október nk.

Málsnúmer 1803002Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands varðandi ferðir fyrir þátttakendur á Vest Norden Travel Mart sem haldin verður á Akureyri 2.-5. október n.k.

Bæjarráð felur markaðs- og menningarfulltrúa að svara erindinu.

15.Málþing um raforkumál

Málsnúmer 1803001Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar varðandi málþing um raforkumál á Íslandi.

Byggðastofnun stendur fyrir málþingi um raforkumál á Íslandi, fimmtudaginn 8. mars í Hofi á Akureyri. Málþingið hefst kl. 13.00, enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.

16.Erindi vegna breytinga á mannvirkjalögum

Málsnúmer 1803005Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna frumvarps til breytinga á mannvirkjalögum.

Bæjarráð óskar eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar.

17.Virkjun vindorku á Íslandi, stefnumótunar- og leiðbeiningarrit

Málsnúmer 1802093Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Landvernd, vegna nýs stefnumótunar- og leiðbeiningarrits sem ber nafnið Virkjun vindorku á Íslandi. Meginmarkmið ritsins er að fjalla um málefni vindorkuvirkjana á Íslandi út frá náttúruverndarsjórnarmiðum með almannahagsmuni að leiðarljósi.

18.Tíðindi - fréttir af vettvangi sveitarstjórnarmála

Málsnúmer 1802095Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga Tíðindi - fréttir af vettvangi sveitarstjórnarmála.

19.Arctic Coast Way

Málsnúmer 1612033Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar þriðja áfangaskýrsla um verkefnið Norðurstrandarleiðin, eða Arctic Coast Way.
Fylgiskjöl:

20.Drög að landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarlegum minjum

Málsnúmer 1803009Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna draga að landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum. Stjórn sambandsins hvetur sveitarfélög til þess að kynna sér landsáætlunina og senda inn umsögn ef talið er tilefni til.

21.Styrktarsjóður EBÍ 2018

Málsnúmer 1802096Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Brunabótafélagi Íslands, vegna styrktarsjóðs EBÍ. Veittur er styrkur til sérstakra framfararverkefna. Umsóknarfrestur er til aprílloka.

Bæjaráð felur deildarstjóra tæknideildar að leggja fyrir bæjarráð tillögur að umsókn.

22.Jafnréttisþing 7.-8. mars 2018

Málsnúmer 1803012Vakta málsnúmer

Jafnréttisþing verður haldið dagana 7.-8. mars undir yfirskriftinni Útvíkkun jafnréttisstarfs - #metoo og margbreytileiki.
Þingið verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica.

Lagt fram til kynningar.

23.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2018

Málsnúmer 1801013Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 17. fundar Ungmennaráðs og 94. fundar Hafnarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 13:15.