Starfsmaður óskast til starfa í Frístund- og lengda viðveru við Grunnskóla Fjallabyggðar

Laus er 40% staða starfsmanns í Frístund og lengda viðveru. Vinnutími er frá kl. 13:30 til kl. 16:15 alla virka daga. Starfið felst í að vinna að frístundastarfi barna eftir að hefðbundinni kennslu lýkur á daginn. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í lifandi umhverfi þar sem áhersla er lögð á góð samskipti.

Umsóknum um störfin skal skilað, ásamt kynningarbréfi og/eða ferilskrá, í tölvupósti á netfang Ásu Bjarkar Stefánsdóttur skólastýru, asabjork@fjallaskolar.is.

Umsóknarfrestur er til og með 5. febrúar 2026.

Umsækjendur þurfa að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Nánari upplýsingar fást hjá skólastýru í síma 464-9150 eða 695-9998.