Kvenmaður óskast í 87% starf í Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar.

Kvenmaður óskast í 87% starf í Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar.

• Starfstöðvar eru á Siglufirði og Ólafsfirði, en aðallega er um að ræða fastar vaktir á Ólafsfirði.

• Sökum eðlis starfsins koma kvenmenn einungis til greina.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Eftirlit og gæsla í sundlaug.

• Almenn afgreiðsla og uppgjör í lok vaktar.

• Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.

• Almenn þrif og annað sem til fellur.

Menntunar- og hæfnikröfur

• Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri, hafa bílpróf og bíl til umráða.

• Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.

• Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.

• Hreint sakavottorð.

• Góð kunnátta í íslensku er skilyrði, enska og þriðja tungumál er kostur.

• Góð tölvukunnátta er kostur.

Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá með umsagnaraðilum og kynningarbréf.

Vinnutími: Morgun- og kvöldvaktir virka daga.

Umsækjendur þurfa að gefa leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá komi þeir til greina í starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 5. desember 2025 og verður öllum umsóknum svarað.

Nánari upplýsingar veitir Skarphéðinn Þórsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar, netfang: skarphedinn@fjallabyggd.is og farsími 866 9136