Ný heimasíða Síldarminjasafnsins

Sl. laugardag var formlega tekin í notkun ný heimasíða Síldarminjasafns Íslands. Búið er að vinna að gerð þessarar síðu í nokkra mánuði og má segja að vel hafi tekist til. 
Á síðunni er að finna helstu upplýsingar um starfsemi safnsins, sýningar, safnkosti og safnkennslu auk þess sem síldarsögunni eru gerð góð skil. Slóðin á heimasíðu safnsins er www.sild.is 



Forsíða heimasíðunnar.