Tilkynningar til barnaverndar

Tilkynningar til barnaverndar Fjallabyggðar 

Tilkynning til barnaverndar þegar ástæða er til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni, ofbeldi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu. (skv. 16. gr. barnaverndarlaga)

Skv. barnaverndarlögum er hverjum þeim sem hefur ástæðu til að ætla að barn búi við ofbeldi eða vanrækslu skylt að tilkynna það til barnaverndarnefndar. Einstaklingar yngri en 18 ára teljast börn. Lögin eiga einnig við um ófædd börn t.d. ef þeim stafar hætta af vímuefnaneyslu móður eða af ofbeldi sem móðir verður fyrir.

Tilkynnandi skal í öllum tilfellum segja til nafns og að auki gera grein fyrir netfangi og símanúmeri ef þörf er á frekari upplýsingum. Óski tilkynnandi nafnleyndar hafa starfsmenn barnaverndar aðeins upplýsingar um tilkynnanda en ekki sá sem tilkynnt er um.

Ef málið þolir ekki bið skal hafa samband símleiðis við 112. 
 
Í hlekkjunum hér fyrir neðan verður þú færður á innskráningarsíðu Ísland.is sem krefst auðkennis. Hvert eyðublað liggur undir flipanum "Umsóknir" og ber yfirheiti hvers flokks