Umsókn um stækkun lóðar við Aðalgötu 3, Siglufirði

Málsnúmer 2104080

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 268. fundur - 05.05.2021

Lagt fram erindi dagsett 26. apríl 2021 þar sem Björn Hauksson, tilvonandi kaupandi að Aðalgötu 3 á Siglufirði, óskar eftir nýjum lóðarleigusamning fyrir fasteignina og óskar jafnframt eftir stækkun lóðarinnar til austurs að Tjarnargötu skv. meðfylgjandi teikningu.
Erindi svarað
Nefndin hafnar umsókn um stækkun á lóð, en samþykkir endurnýjun lóðarleigusamnings í samræmi við núverandi notkun og afmörkun lóðar.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 282. fundur - 02.03.2022

Lagt fram erindi þar sem Björn Hauksson, f.h. kaupenda að Aðalgötu 3 á Siglufirði, óskar eftir stækkun lóðarinnar til austurs að Tjarnargötu skv. meðfylgjandi teikningu, en sækir um stækkun til vesturs til vara.
Nefndin hafnar stækkun lóðar til austurs og vesturs.