Framkvæmdir og viðhald á mannvirkjum Fjallabyggðarhafna 2019 - 2020

Málsnúmer 1909051

Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 107. fundur - 19.09.2019

Hafnarstjóri fór yfir viðhald og framkvæmdir við Fjallabyggðarhafnir á árinu 2019 og gerði grein fyrir hvað lægi fyrir á næsta ári. Nánari útlistun á verkefnum verður lögð fram við gerð fjárhagsáætlunar 2020.

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 109. fundur - 06.11.2019

Hafnarstjóri fór yfir viðhaldsáætlun Fjallabyggðarhafna fyrir árið 2020.
Fram komu ábendingar um endurbætur á lýsingu á hafnarsvæði vestan við Hafnarbryggju.
Hafnarstjórn felur deildarstjóra tæknideildar að koma með tillögur.

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 110. fundur - 27.11.2019

Lögð fram tillaga að viðhaldsáætlun fyrir árið 2020.
Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti framlagða viðhaldsáætlun.