Beiðni um rekstrarstyrk og áframhaldandi framkvæmdarstyrk við Golfklúbb Fjallabyggðar í Ólafsfirði

Málsnúmer 1710002

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 522. fundur - 10.10.2017

Lögð fram umsókn Golfklúbbs Fjallabyggðar um áframhaldandi rekstrar- og framkvæmdastyrk en núgildandi samningar renna út í ár.

Bæjarráð óskar eftir því að forsvarsmenn golfklúbbsins mæti á næsta fund bæjarráðs.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 523. fundur - 17.10.2017

Á fund bæjarráðs mættu fulltrúar Golfklúbbs Fjallabyggðar til þess að ræða beiðni klúbbsins um rekstrar- og framkvæmdastyrk.

Lagðar voru fram hugmyndir að uppbyggingu á vellinum og verða þær teknar til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar 2018.