Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 64. fundur - 15. desember 2014

Málsnúmer 1412003F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 111. fundur - 15.01.2015

Formaður bæjarráðs, Steinunn María Sveinsdóttir gerði grein fyrir fundargerð.
  • Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 64. fundur - 15. desember 2014 Hafnarstjóri leggur fram hafnarreglugerð fyrir Fjallabyggðarhafnir og erindisbréf hafnarstjórnar fram til kynningar.
    Nokkur umræða var um seturétt á fundum hafnarstjórnar og er það niðurstaða nefndarinnar að hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar er falið að ákveða hverjir mæta á fund hverju sinni.
    Bókun fundar Afgreiðsla 64. fundar hafnarstjórnar staðfest á 111. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
  • .2 1412003 Ný hafnalög
    Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 64. fundur - 15. desember 2014 Búið er að samþykkja ný hafnarlög og voru þau lögð fram til kynningar.
    Hlutur ríkisins gæti verið um 75% og hefur hlutur ríkisins hækkað úr 60%. Vonir stóðu til þess að að hlutur ríkisins væri um 85%.
    Hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar er falið að funda með fulltúum Vegagerðar ríkisins og samgönguráði er varðar framkvæmdir við Hafnarbryggu.
    Lögð er áhersla á að fá forhönnun - tillögur frá Vegagerð ríkisins um hönnun og er óskað eftir áætluðum kostnaði fyrir næsta fund.
    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Afgreiðsla 64. fundar hafnarstjórnar staðfest á 111. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
  • .3 1412012 Gjaldskrár 2015
    Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 64. fundur - 15. desember 2014 Lögð fram leiðrétt gjaldskrá fyrir árið 2015. Búið er að gera þær breytingar sem bæjarráð samþykkti og hafnarstjórn lagði áherslu á.
    Gjaldskráin samþykkt samhljóða með áorðnum breytingum.
    Hafnarstjórn leggur áherslu á að yfirhafnarvörður fylgi gjaldskrá.
    Bókun fundar Afgreiðsla 64. fundar hafnarstjórnar staðfest á 111. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
  • Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 64. fundur - 15. desember 2014 Lagt fram til kynningar.
    Tekjur tímabils hærri um 1,1 millj.
    Launaliðir tímabils hærri um 1,7 millj.
    Annar rekstrarkostnaður hærri sem nemur 2,4 millj.að teknu tilliti til eignabr. og afskr.
    Fjármagnsliðir á tímabilinu 0,9 millj. sem er 0,1 millj. lægra miðað við tímabilið.
    Lagt fram til kynningar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 64. fundar hafnarstjórnar staðfest á 111. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.