Sumarleyfi bæjarstjórnar skv. 15. gr. sveitarstjórnarlaga og 28. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar

Málsnúmer 1306011

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 90. fundur - 12.06.2013

Afgreiðslu frestað, þar sem fyrirhugaður er aukafundur bæjarstjórnar 20. júní 2013.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 91. fundur - 20.06.2013

Forseti bæjarstjórnar lagði fram svohljóðandi tillögu:
"Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkir að fella niður fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar í júlí og ágúst 2013.
Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarfrí verður miðvikudaginn 11. september 2013.
Bæjarstjórn felur bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála á þessum tíma í samræmi við 31. grein áður nefndrar samþykktar."

Tillaga að sumarleyfi var samþykkt með 9 atkvæðum.