Bæjarráð Fjallabyggðar - 295. fundur - 7. maí 2013

Málsnúmer 1305002F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 89. fundur - 15.05.2013

Bæjarstjóri, Sigurður Valur Ásbjarnarson gerði grein fyrir fundargerð.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 295. fundur - 7. maí 2013
Undir þessum dagskrárlið sátu bæjarfulltrúarnir, Ingvar Erlingsson, Ólafur H. Marteinsson, S. Guðrún Hauksdóttir, Guðmundur Gauti Sveinsson og Bjarkey Gunnarsdóttir, ásamt skýrsluhöfundi Haraldi L Haraldssyni. Sólrún Júlíusdóttir boðaði forföll.
Formaður bæjarráðs bauð fundarmenn velkomna og gaf síðan Haraldi orðið.
Haraldur afhenti fundarmönnum síðan skýrslu sína og kynnti fyrir fundarmönnum.
Málið er trúnaðarmál.
Bókun fundar Afgreiðsla 295. fundar bæjarráðs staðfest á 89. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 295. fundur - 7. maí 2013
Lagt fram minnisblað endurskoðanda Fjallabyggðar og uppfært fjárhagslíkan með áramótastöðu og samþykktum viðaukum við fjárhagsáætlun 2013.
Gera þarf lítilsháttar breytingar á fjárhagsáætlun ársins vegna fjármagnsliða og afskrifta og verður lögð fram viðaukatillaga á næsta bæjarstjórnarfundi sem tekur tillit til þess að upphæð kr. 109 þúsund.

Að mati endurskoðanda er áætlun efnahags raunhæf og veltufjárstaða í ágætu lagi. Í heildina tekið er talið að áætlunin sé raunhæf en varfærin tekjulega séð.
Bókun fundar
Til máls tóku Ólafur H. Marteinsson og Sigurður Valur Ásbjarnarson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að fresta afgreiðslu 295. fundar bæjarráðs.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 295. fundur - 7. maí 2013
Farið var yfir upplýsingar frá tæknideild bæjarfélagsins.
Lagt er til að ráðist verði strax í lagfæringar á útrásum á staðnum og aka út efni og loka svæðinu og er áætlaður kostnaður tæplega 4,6 m.kr.
Bæjarráð telur rétt að ráðast í umbætur á staðnum í samræmi við óskir íbúa og tillögur tæknideildar og er umrædd fjárfesting sett í forgang er varðar lagfæringar í fráveitumálum bæjarfélagsins.
Bókun fundar Afgreiðsla 295. fundar bæjarráðs staðfest á 89. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 295. fundur - 7. maí 2013
Bæjarstjóri fékk á 290. fundi bæjarráðs umboð til að ræða við Ósland ehf er varðar áhuga hans um hugsanleg kaup fyrirtækisins á umræddri eign að Námuvegi 6.
Náðst hefur samkomulag um kaup á umræddri eign og er miðað við að afhenda hluta af húsnæðinu þann 1. júní n.k.
Bæjarfélagið hefur áfram afnot af norður hluta hússins samkvæmt nánari samkomulagi til afnota fyrir þjónustu við bæjarbúa á Ólafsfirði. Bæjarráð samþykkir samkomulagið og felur bæjarstjóra að leggja fram kaupsamning á næsta bæjarstjórnarfundi til samþykktar er byggir á framkomnum hugmyndum.
Bókun fundar

Til máls tóku Bjarkey Gunnarsdóttir, Sólrún Júlíusdóttir og Sigurður Valur Ásbjarnarson.

Bjarkey Gunnarsdóttir óskar eftir að bókað verði að hún hafi ákveðið að sitja hjá við afgreiðslu þessa máls, þar sem hún telur eðlilegt að þær eignir sem sveitarstjórn hefur ákveðið að selja á hverjum tíma séu auglýstar opinberlega, þannig að allir eigi þess kost að bjóða í þær.

Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum að fresta afgreiðslu þessa dagskrárliðar, þar sem endanlegur kaupsamningur liggur ekki fyrir og felur bæjarráði fullnaðarafgeiðslu málsins.

Bjarkey Gunnarsdóttir og Sólrún Júlíusdóttir sátu hjá.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 295. fundur - 7. maí 2013

Í ljósi framkominna tillagna um nýtt deiliskipulag sem er í vinnslu hjá skipulags- og umhverfisnefnd, telur bæjarráð rétt að bóka neðanritað.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að leyfi til niðurrifs verði samþykkt í skipulags- og umhverfisnefnd enda verði lögð áhersla á, við útgáfu leyfis, að viðskilnaður og yfirborðsfrágangur lóðar verði bænum og núverandi lóðarhafa til sóma.

Bæjarráð leggur ríka áherslu á að eðlilega verði staðið að niðurrifi þessu og skilum á lóðinni til bæjarfélagsins án nokkurra kvaða eða eftirmála, enda beri Síldarvinnslan fulla ábyrgð á verkinu.
Bókun fundar

Bæjarstjóri óskar eftir frestun á afgreiðslu málsins.
Bæjarstjóri hefur fengið upplýsingar um að hugsanlega væru aðilar tilbúnir til að koma starfsemi af stað í húsnæðinu.
Bæjarstjóri ræddi málið við eiganda hússins og féllst hann á að kanna málið til hlítar og fá niðurstöðu í málið fyrir fund í bæjarráði 28.05.2013 eða í síðasta lagi fyrir næsta fund bæjarstjórnar.
Málið er unnið í samráði við þann aðila sem tekið hafði að sér að rífa húsnæðið í umboði eigenda.

Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum að fresta afgreiðslu þessa dagskrárliðar og felur bæjarráði fullnaðarafgeiðslu málsins.
Guðmundur Gauti Sveinsson og Sólrún Júlíusdóttir sátu hjá.

Eftirfarandi bókun var lögð fram af minnihluta, Sólrúnu Júlíusdóttur og Guðmundi Gauta Sveinssyni.
"Minnihlutinn leggur til að ráðist verði í grenndarkynningu áður en niðurrif verði leyft.
Ljóst sé að niðurrif hússins mun hafa víðtæk áhrif á alla eyrina m.t.t. veðurfars. Þetta ætti í raun að snerta með einum eða öðrum hætti alla bæjarbúa og ætti að gefa öllum kost á því að koma sinni skoðun á framfæri."