Staðfesting um áframhaldandi setu fulltrúa í samvinnunefnd um svæðisskipulag Eyjafjarðar

Málsnúmer 1006070

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 175. fundur - 06.07.2010

Í bréfi formanns samvinnunefndar um svæðisskipulag Eyjafjarðar er óskað eftir tilnefningu Fjallbyggðar með vísan til afstaðinna sveitarstjórnarkosninga.  Einnig fylgdi með fundargerð 11. fundar frá 20. maí 2010.

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Kristinn Gylfason formann skipulags- og umhverfisnefndar og skipulags- og byggingarfulltrúa, Stefán Ragnar Hjálmarsson.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 97. fundur - 08.09.2010

Lagt fram til kynningar frá bæjarráði þar sem samþykkt er að tilnefna Kristinn Gylfason formann skipulags- og umhverfisnefndar og Stefán Ragnar Hjálmarsson skipulags- og byggingarfulltrúa í samvinnunefnd um svæðisskipulag Eyjarfjarðar.