Bæjarráð Fjallabyggðar - 169. fundur - 6. maí 2010

Málsnúmer 1005001F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 49. fundur - 11.05.2010

Bæjarstjóri, Þórir Kr. Þórisson gerði grein fyrir fundargerð.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Fyrirhugað er að hefja að nýju jarðhitarannsóknir í Siglufirði með það að markmiði að afla meiri hitaorku fyrir hitaveitu Rarik.
Í erindi Rarik er óskað eftir því að Fjallabyggð tilnefni samráðsaðila varðandi hugsanlega staðsetningu mannvirkja, umgengni lands og aðra þætti eftir þörfum.
Óskað er eftir framkvæmdaleyfi fyrir borun allt að 10 rannsóknarholna og vinnsluholu í Skarðsdal, Siglufirði.
Fyrir liggur jákvæð umsögn nefndarmanna skipulags- og umhverfisnefndar.
Bæjarráð fagnar framkomnu erindi og samþykkir það. Jafnframt samþykkir bæjarráð að samráðsaðili sveitarfélagins verði skipulags- og byggingarfulltrúi.
Bókun fundar

Til máls tóku Guðmundur Skarphéðinsson og Jónína Magnúsdóttir.

Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Í erindi Ásgeirs L. Ásgeirssonar er óskað eftir stuðningi sveitarfélagsins við verkefnið "Fugl fyrir milljón", sem gengur út á að draga athygli að Tröllaskaganum sem áhugaverðu svæði á Íslandi.
Bæjarráð vísar erindinu til atvinnu- og ferðamálanefndar.
Bókun fundar Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Þrjú tilboð bárust í Kirkjuveg 4 Ólafsfirði innan tilskilins tilboðsfrests sem var 28. apríl.
Tilboð Íslenska olíufélagsins var síðan dregið til baka.
Fyrirliggjandi eru því eftirtalin tilboð:
Sigurjón Magnússon bauð kr. 520 þúsund og
Sigríður Stefánsdóttir bauð kr. 680 þúsund.
Bæjarráð samþykkir að selja hæstbjóðanda húsið með kvöðum um að farið verði í endurbætur á húsnæðinu sem fyrst.
Bókun fundar

Til máls tók Bjarkey Gunnarsdóttir.
Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Í erindi Hlyns Guðmundssonar og Ingimars Viktorssonar er þess óskað að leiga á Tjarnarborg verði felld niður vegna dagskrár á sjómannadag.
Bæjarráð hafnar erindinu þar sem sveitarfélagið styrkir hátíðarhöld á sjómannadeginum.
Bókun fundar Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Fyrir bæjarráði liggur tillaga bæjarstjóra og fræðslu- og menningarfulltrúa um sameiningu bókasafnanna á Siglufirði og í Ólafsfirði frá 1. september 2010. Lagt er til að auglýst verði 100% staða forstöðumanns með ráðningu frá 15. ágúst 2010 og að 50% forstöðumannastöður við bókasöfnin í Ólafsfirði og Siglufirði verði lagðar niður frá 1. september 2010. Drög að starfslýsingu forstöðumanns bóka- og skjalasafns Fjallabyggðar voru einnig kynnt.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
Bókun fundar

Til máls tóku Bjarkey Gunnarsdóttir, Jónína Magnúsdóttir og Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir.
Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Fyrir bæjarráði liggur beiðni um fjárheimild vegna uppgjörs á kaupsamningi um yfirbyggingu á slökkvibíl, ásamt endurnýjun heimildar fyrra árs sem ekki var nýtt.
Bæjarráð samþykkir heimild að upphæð kr. 9.235.000 og vísar til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010.
Bókun fundar

Til máls tóku Egill Rögnvaldsson, Guðmundur Skarphéðinsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Þorsteinn Ásgeirsson, Þórir Kr. Þórisson og Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir.
Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
165. fundur bæjarráðs fól bæjarstjóra að ganga til samninga við Skíðafélag Ólafsfjarðar á grundvelli samningsdraga frá 2009.
Fyrir bæjarráði liggja drög að samningi til fimm ára samtals að upphæð kr. 4 milljónir.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita.
Bókun fundar

Til mál tóku Bjarkey Gunnarsdóttir, Þorsteinn Ásgeirsson og Þórir Kr. Þórisson.
Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar laugardaginn 29. maí 2010.
Bæjarráð samþykkir að kjörstaðir verði tveir, í ráðhúsinu Siglufirði og í gagnfræðaskólanum í Ólafsfirði.
Jafnframt að kjörstaðir verði opnir frá kl. 10.00 að morgni til kl. 20.00.
Bókun fundar Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Á 164. fundi bæjarráðs var erindi Herhúsfélagsins, um yfirtöku Tjarnargötu 8, Siglufirði, frestað þar til gögn um skipulag svæðisins lægju fyrir.
89. fundur skipulags- og umhverfisnefndar leggur til að þar sem húsið er í beinni götulínu við Gránugötu skv. gildandi aðalskipulagi, sem gerir ráð fyrir að gatan lengist niður að sjó og liggi með sjávarsíðunni í norður, verði húsið fært í suður.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Herhúsfélaginu, verði gefin Tjarnargata 8 Siglufirði, með kvöðum um endurbætur og færslu hússins komi til gatnagerðar.
Bókun fundar

Til máls tók Hermann Einarsson.
Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Undir þessum lið vék Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir af fundi.
Fyrir bæjarráði liggja drög að samningi við hestamenn í Ólafsfirði til að mæta þeim kostnaði af því að endurbæta og lagfæra aðstöðu fyrir ástundun hestamennsku vestur af byggðinni í Ólafsfirði, þar á meðal til lagfæringa á hesthúsum. Vegna jarðgangagerðar hefur ekki verið hægt að nota aðstöðuna né stunda íþróttina frá haustinu 2006. Samningurinn kveður á um greiðslur allt að kr. 35 milljónum sem tekur mið af framvindu við framkvæmdir. Samkvæmt framkvæmdaáætlun er gert ráð fyrir síðustu greiðslu 1. september 2012. Samhliða þessum samningi liggur fyrir bæjarráði, samningur milli sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar þar sem hlutur Vegagerðarinnar í fyrrgreindum samningi er að upphæð kr. 20 milljónir.
Á fjárhagsáætlun 2010 er gert ráð fyrir framlagi sveitarfélagins að upphæð kr. 5 milljónir.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða samninga og vísar til endanlegrar ákvörðunar í bæjarstjórn.
Bókun fundar

Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Til máls tóku Egill Rögnvaldsson, Guðmundur Skarphéðinsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Þorsteinn Ásgeirsson, Þórir Kr Þórisson, Jónína Magnúsdóttir og Hermann Einarsson.
Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 6 atkvæðum.  Egill Rögnvaldsson og Bjarkey Gunnarsdóttir sátu hjá.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Bæjarráð samþykkir að fresta afgreiðslu þessa dagskrárliðar til næsta bæjarráðsfundar.
Bókun fundar Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Eftirtalin þrjú verð bárust í gerð deiliskipulags fyrir Flæðar í Ólafsfirði.
VSÓ Ráðgjöf kr. 1.443.250,-
Arkitektur.is kr. 1.052.631,-
X2-Hönnun-Skipulag kr. 878.500,-
Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur til að samið verði við X2-Hönnun-Skipulag um þetta verk.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við X2-Hönnun-Skipulag.
Bókun fundar

Til máls tók Guðmundur Skarphéðinsson.
Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Bæjarstjóri sótti aðalfund og kynnti bæjarráði umræður fundarins.
Bókun fundar Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Eftirfarandi breytingum í undirkjörstjórn á Siglufirði var komið á framfæri:
Fyrir hönd B-listans taki Ásta Rós Reynisdóttir sæti Sólrúnar Júlíusdóttur sem varamaður í undirkjörstjórn.
Fyrir hönd H-listans taki Rögnvaldur Þórðarson sæti Halldóru S. Björgvinsdóttur, sem aðalmaður í undirkjörstjórn og í stað Rögnvaldar Þórðarsonar taki Arnar Ólafsson sæti sem varamaður í undirkjörstjórn.
Bókun fundar

Bæjarstjórn samþykkti eftirfarandi breytingu í undirkjörstjórn í Siglufirði með 9 atkvæðum.

Fyrir hönd B-listans tekur Ásta Rós Reynisdóttir sæti Sólrúnar Júlíusdóttur sem varamaður í undirkjörstjórn.
Fyrir hönd H-listans tekur Rögnvaldur Þórðarson sæti Halldóru S. Björgvinsdóttur, sem aðalmaður í undirkjörstjórn og í stað Rögnvaldar Þórðarsonar tekur Arnar Ólafsson sæti sem varamaður í undirkjörstjórn.

• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Lagt fram til kynningar launayfirlit fyrstu fjóra mánuði ársins.
Bókun fundar Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Lagt fram til kynningar samantekt lánayfirlits.
Í apríllok er nettó staða skulda sveitarfélagsins kr. 968 milljónir.
Bókun fundar Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Lagður fram til kynningar samanburður á staðgreiðsluskilum fyrstu fjóra mánuði áranna 2007, 2008, 2009 og 2010.
Fram kemur að greidd staðgreiðsla nemur kr. 237 milljónum og að breyting til hækkunar milli 2009 og 2010 er 7,4%, sem er 90,6% af árshlutaáætlun ársins.
Bókun fundar Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá Þjóðskrá um það að kjósendur verði á kjörskrá við sveitarstjórnarkosningar 29. maí í því sveitarfélagi sem þeir eru skráðir með lögheimili samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár laugardaginn 8. maí 2010.
Bókun fundar Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Bókun fundar Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Bókun fundar Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Bæjarráð Fjallabyggðar - 169
Fyrir bæjarráði er erindi Golfklúbbs Siglufjarðar um aðkomu Fjallabyggðar að uppgræðslu á malarnámu og uppbyggingu golfvallar í Hólsdal.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar til skipulags- og umhverfisnefndar þeim hluta erindis er varðar deiliskipulag.
Bókun fundar

Til máls tók Guðmundur Skarphéðinsson.
Afgreiðsla 169. fundar staðfest á 49. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.