Víkingurinn 2026

Aflraunakeppnin Víkingurinn 2026 kemur í fyrsta sinn til Fjallabyggðar með tvær spennandi keppnisgreinar föstudaginn 24. júlí. Fyrri greinin, Mylluganga, fer fram við Tjarnarborg í Ólafsfirði kl. 14:00, en síðari greinin, Drumbalyfta, hefst við Kaffi Rauðku á Siglufirði kl. 16:00. Keppnin verður sannkölluð kraftasýning og eru íbúar og gestir hvattir til að mæta á svæðið og hvetja keppendur áfram.