Trilludagar - fjölskylduhátíð

Á Trilludögum finna allir eitthvað við sitt hæfi. Gestum verður boðið á sjóstöng út á fjörðinn fagra. Kiwanismenn standa grillvaktina þar sem öllum verður boðið að smakka dýrindis fisk beint úr hafi. Hoppukastalar á svæðinu fyrir börnin, tónlistin mun svo óma af Trillusviði yfir daginn.