Sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu á Siglufirði

Sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Sunnudaginn 1. Mars kl. 14.30 - 15.30 mun tónlistamaðurinn Framfari leika af fingrum fram á húsflygilinn.
Framfari hefur áður komið fram á tónleikum í Alþýðuhúsinu bæði einn og sér og með tónlistamanninum Rafnari. Framfari samdi tónlist fyrir kvikmyndina Af jörðu ertu kominn sem frumsýnd var síðastliðið sumar, og hefur tekið þátt í ýmsum listviðburðum og tónleikum að undanförnu. Stundin verður spuni í tíma og rúmi þar sem kaffigestir verða þátttakendur í upptöku.

Að vanda verður boðið uppá kaffi og meðlæti og tækifæri til að spjalla við listamanninn. Verið velkomin að eiga með okkur ljúft sunnudagssíðdegi.

Uppbyggingarsjóður Eyþings, Fjallabyggð, Aðalbakarí, Tannlæknastofa Kristjáns Víkingssonar, Kjörbúðin og Eyrarrósin styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.