Stubbamót SSS og Krónunnar

Krónan og Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg (SSS) heldur Stubbamót laugardaginn 28. febrúar 2026.
 
Mótið fer fram á Skíðasvæði Siglufjarðar í Skarðsdal.
Um er að ræða dagsmót fyrir börn fædd 2017 og yngri. Keppt verður í Stubbabraut (2 umferðir) á neðra lyftu svæði. Einnig verður boðið upp á stutta stubbabraut fyrir yngstu iðkendur við töfrateppið.
 

Dagskrá:

  • Kl. 09:00 – 10:00 Afhending mótsgagna
    Brautarskoðun
  • Kl. 10:30 6 ára og yngri (börn fædd 2019 og yngri)
  • Kl. 12:00 7-8 ára (börn fædd 2017-2018)
Mótsgjaldið er 2.500 kr. og innifalið er:
  • Þátttaka
  • Verðlaunapeningur
  • Mótsgjöf
Skráning fer fram með því að senda upplýsingar á netfangið sigloskiteam@gmail.com Nánari upplýsingar i síma 8487440, Anna Lind
Vinsamlegast tilgreinið fullt nafn keppanda og fæðingarár.
 
Skráning þarf að berast í síðasta lagi mánudaginn 23. febrúar.