SKAFL - Alþýðuhúsið á Siglufirði 2022

27. - 30. október verður listasmiðjan Skafl haldin í Alþýðuhúsinu á Siglufirði í fjórða sinn með þátttöku listamanna með ólíkan bakgrunn í listum. Fólk kemur saman víða að og vinnur í frjálsu flæði og þvert á listgreinar í nokkra daga. Smiðjan er hugsuð sem tilraunasmiðja og verða því ekki endilega til fullmótuð verk eða hugmyndir á vinnutímanum. Mikilvægast er samtalið og samvera listamannana og samskipti við bæjarbúa. Auk Alþýðuhússins munu þátttakendur vinna í Herhúsinu og í Ráðhússal Siglufjarðar og verður afrakstur smiðjunnar sýndur í Ráðhússalnum og með uppákomu í Alþýðuhúsinu.

Þann 29. október mun Helga Páley Friðþjófsdóttir opna sýningu í Kompunni Alþýðuhúsinu, sem síðan stendur til 13. nóvember.
Skaflinum lýkur svo með erindi Jaouad Hbib sunnudaginn 30. október.

Dagskrá opin gestum.

29 okt. kl. 14.00 - 16.00
Ráðhússalur Siglufjarðar - Sýning / uppákoma þátttakenda í Skafli
29 okt. kl. 16.00 - 18.00
Kompan Alþýðuhúsinu á Siglufirði - Helga Páley Friðþjófsdóttir
29 okt. kl. 21.00 - 22.00
Alþýðuhúsið á Siglufirði - Uppákoma þátttakenda í Skafli
30 okt. kl. 12.00 - 13.00
Alþýðuhúsið á Siglufirði - Jaouad Hbib, heimspeki og matargerð
 
Þátttakendur
Katrin Hahner - myndlist / tónlist
Andreas Brunner - myndlist
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir - myndlist
Ólöf Helga Helgasóttir - myndlist
Brák Jónsdóttir - myndlist.
Helga Páley Friðþjófsdóttir - myndlist
Logi Höskuldsson - myndlist / tónlist
Jaouad Hbib - Heimspeki, matargerð
Rodrigo Lopes - tónlist
Lefteris Yakoumakis - myndlist
Brynja Baldursdóttir - myndlist
Eleftheria Katsianou - kvikmyndagerð
 
Styrktaraðilar
Uppbyggingasjóður - Fjallabyggð - Norðurorka - KEA - Aðalbakarí - Kjörbúðin - Rammi hf.- Herhúsið 
Sýna minna