Síldarævintýrið á Siglufirði fer fram um verslunarmannahelgina og býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Öll dagskrá fyrir börn og ungmenni er að venju ókeypis.
Verið velkomin til Siglufjarðar þar sem menning, saga, listir, afþreying og stórbrotin náttúra sameinast í einstaka upplifun fyrir gesti á öllum aldri.
Pétur Jóhann hitar upp fyrir hátíðarhöldin þegar hann þjófstartar Síldarævintýrinu miðvikudaginn 29. júlí. Miðasala fer fram á Tix.is.
Á dagskránni verða meðal annars:
- Fjölskyldugrill
- Hoppukastalar og Hoppland
- Leikhópurinn Lotta
- Ástarpungarnir
- Flugeldasýning
- Síldarsöltun
- Skrúðganga og brenna
- Froðufjör
- Fornbílasýning
- Síldarball
- Og margt, margt fleira!
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Siglufirði um verslunarmannahelgina og fagna saman þessari glæsilegu fjölskylduhátíð sem á sér yfir 35 ára sögu.