Kvennakórinn Hytturnar halda vortónleika

Miðvikudaginn 20. maí munu Hytturnar halda sína fyrstu vortónleika í Bátahúsinu á Siglufirði kl. 19:30. Við erum búnar að eiga frábæran fyrsta vetur og hlökkum mikið til að fá að syngja fyrir ykkur.
Aðgangseyrir er 3000,- kr fyrir fullorðna og einungis verður tekið við reiðufé.
Við bjóðum öll velkomin og vonumst til að sjá sem flest.