Karlakór Fjallabyggðar og Ástapungarnir í Tjarnarborg

Karlakór Fjallabyggðar býður til glæsilegrar söngskemmtunar í Tjarnarborg fimmtudaginn 7. maí kl. 20:00

Með kórnum stíga á svið hinir líflegu og skemmtilegu Ástarpungar og má því búast við fjölbreyttri dagskrá og góðri stemningu.
Á efnisskránni verður fjölbreytt blanda af fallegum og léttum lögum sem höfða til allra.
Miðaverð er 4.000 kr, athugið að enginn posi verður á staðnum.