Fjarðargangan

Nú er ljóst að Fjarðargangan verður haldin á Lágheiði 14.febrúar. Veðurspáin er frábær, það verður kalt, en aðstæður eru flottar á heiðinni. Við verðum með 5km hring og eru hægt að velja 5km, 10km og 20km, barnagöngu 500m ca og stemmningin verður til staðar þrátt fyrir að vera ekki í miðbæ Ólafsfjarðar eins og við viljum vera. Akstur frá bænum tekur um 20 min upp á Lágheiði frá Ólafsfjarðarbæ.
 
DRÖG að dagskrá mótsins er eftirfarandi:
 
Föstudagur 13.febrúar
  • 16:00 - 20:30 Móttaka keppnisgagna í TJARNARBORG
  • 16:00 - 20:30 Craftverslun með sölubás í Tjarnarborg
  • 16:00 Opnun sögusýningar skíðaíþróttarinnar á Ólafsfirði í Pálshúsi.
 
Laugardagur 14. febrúar
  • 08:00 - 10:00 Móttaka keppnisgagna í Tjarnarborg
  • 10:30 Barnagangan 2026 ræst
  • 11:00 Fjarðargangan 2026 ræst
  • 13:00 - 16:00 Craftverslun með sölubás í Tjarnarborg
  • 15:00 Kaffisamsæti og verðlaunaafhending í Tjarnarborg
Verðlaunað er í eftirfarandi aldursflokkum:
20 km, 17-34 ára, 35-49 ára, 50-64 ára, 65 ára og eldri, kvenna og karla.10 km, þrjú efstu sæti kvenna og karla
 
Úrdráttarverðlaun verða dregin út í kaffisamsætinu kl 15:00
 
Craftverslun með sölubás í Tjarnarborg.
 
Hlökkum til að sjá ykkur!