Ferðaklasi Fjallabyggðar - Stofnfundur

Ferðaklasi Fjallabyggðar - Stofnfundur

Öllum hagaðilum í Fjallabyggð er boðið til stofnfundar um Ferðaklasa Fjallabyggðar í framhaldi af tveimur kynningarfundum sem haldnir voru nýverið á Ólafsfirði og Siglufirði.
Stofnfundurinn verður haldinn á Sigló hótel og hefst klukkan 17:00.

Fundarefni:

  • Samtal um framtíðarsýn og fyrstu verkefni
  • Hvað á "barnið" að heita?
  • Kosning stjórnar
  • Samþykktir Ferðaklasans
  • Ákvörðun um félagsgjald

Vinnum saman að öflugri ferðaþjónustu í Fjallabyggð