Brasilísk sveifla í Brimsölum

Fullkomin tímasetning fyrir suðræna stemningu á sunnudagseftirmiðdegi.

Guito Thomas og Rodrigo Lopes ætla að töfra fram ekta brasilíska sveiflu. Viðburðurinn fer fram í Menningarsetrinu að Brimsölum í Ólafsfirði, Námuvegi 8.

Boðið verður upp á heitar vöflur og kaffi með tónlistinni - Tilvalið tækifæri til að koma og hvetjum við íbúa til þess að mæta.

Nánari upplýsingar á viðburðardagatali á Facebook: https://fb.me/e/f7dntM58z