Berjadagar tónlistarhátíð í Ólafsfirði

Berjadagar tónlistarhátíð verður haldin 3.-6. ágúst nk. Björg Brjánsdóttir þverflauta, Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari, Helga Þórarinsdóttir víóluleikari og fyrirlesari, Ármann Helgason klarínett, Einar Bjartur Egilsson píanó, strengjasveitin Íslenskir strengir, Ave Kara Sillaots harmónikka og margir fleiri. Frumflutt verða íslensk verk og kammermúsík frá ýmsum löndum verður í forgrunni! Búið ykkur undir spennandi helgi með fjölbreyttum tónleikum um Verslunarmannahelgi! Á meðal viðburða verður listsýning utan dyra og tónlistarviðburður í Litlusveit, við sumarbústað listakvennanna Margrétar Jónsdóttur og Helgu Pálínu Brynjólfsdóttur, en hann er staðsettur rétt norðan við Þóroddsstaðatjörn, 5 km frá bænum, milli Auðna og Þóroddsstaða vestan megin í firðinum. Sjáumst á Berjadögum 2023
//
Hátíðin er styrkt af Bæjarsjóði Fjallabyggðar, Menningarsjóði FÍH, SSNE/Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystri og fleirum. Sjáumst!