Berjadagar - Tónlistarhátíð í Ólafsfirði 15.-16. ágúst 2025 Í Brimsölum.
Berjadagar - Tónlistarhátíð við hafið hefst föstudaginn 15. ágúst kl. 11:00 og stendur til laugardagskvöldsins 16. ágúst kl. 21:00. Tónleikar verða í Brimsölum og í Ólafsfjarðarkirkju.
Berjadagar 2025 eru í samvinnu við umhverfisverkefnið Fegurð Fjarða og samfélagshúsið Brimsali Ólafsfirði.
Sjá nánar á berjadagar.is
Dagskrá gefin út með fyrirvara um breytingar (berjadagar.is)
Dagskrá:
Föstudagur 15. ágúst
Kl. 11:00-11:30 morgunstund í Ólafsfjarðarkirkju
'Bach í bítið'
Ólöf Sigursveinsdóttir barokkselló
Að tónlistarflutningi loknum bíður há-norðlensk, heimabökuð ostakaka og kaffibolli númer tvö. Næstu tónleikar um kvöldið í Brimsölum.
Kl. 19:00 í sal Brimsala við Námuveg 8
'Nonnakvöld'
Flygill Jóns Þorsteinssonar (1951-2024) verður ,,vígður í salnum'' í nýju rými.
Fjöldasöngur og gleði við völd! Byrjað með fyrra fallinu því Ída Semey býður uppá súpu fyrir gesti.
Tónskáld kvöldsins Gaspar Cassado, Edvard Grieg, Carl Nielsen, Árni Thorsteinsson o.fl.
Þeir sem fram koma:
Sellósveitin Sólstafir, Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir selló, Ásdís Arnardóttir, selló, Hrafn Heiðar Guðmundsson selló og Ólöf Sigursveinsdóttir selló, Sigursveinn Magnússon píanó og Sigrún Valgerður Gestsdóttir sópran
Laugardagur 16. ágúst
Gengið upp í Rauðskörð á vegum Ferðafélagsins Trölla. Gangan er um fimm klukkutímar. Nánari upplýsingar koma síðar.
Kl. 20:00 Ólafsfjarðarkirkja
'Hafgúa, marfólk og dísir'
Elmar Gilbertsson syngur sig inn í hjörtun og leikur sér með hin ýmsu viðfangsefni söngljóðsins.
Elmar er gestum hátíðarinnar að góðu kunnur því hann kom og söng Alfredo í La Traviata eftir Verdi í tónleikahúsi Ólafsfirðinga árið 2019. Þar söng hann á móti Sigrúnu Pálmadóttur sópransöngkonu!
Elmar hefur verið söngvari við ríkisóperuna í Stuttgart í Þýskalandi síðustu árin. Það mætti með sanni segja að Elmar hafi komið séð og sigrað þar og því eru allir hvattir til að leggja leið sína í kirkjuna fögru til að hlíða á söng og leik þeirra Elmars og Einars Bjarts. Á þessum tónleikum hljómar einnig sellókonsert eftir Edvard Elgar.
Þeir sem fram koma:
Elmar Gilbertsson tenór, Einar Bjartur Egilsson píanó, Ólöf Sigursveinsdóttir selló
Miðar á tix.is og við innganginn
Listræn stjórnun: Ólöf Sigursveinsdóttir
www.olofsigursveinsdottir.com
Aðgangseyrir 3500 kr.
Hátíðarpassi 6000 kr.
Hátíðin er styrkt af Fjallabyggð, Ísfélaginu, Eignamiðlun