Alþýðuhúsið á Siglufirði; Línus Orri - Tónlist utan- og innandyra

Laugardagur 4. júlí kl. 14:00 - 17:00  Línus Orri Gunnarsson flytur tónlist innan og utandyra

Linus Orri Gunnarsson mun umvefja gesti Alþýðuhússins um menningarhelgina Frjó með flæðandi tónlist innan og utandyra.
Hann er sjálfmenntaður tónlistamaður sem spilar á gítar, mandólín og írska þverflautu. Hefðbundið tónlistarnám hentaði honum ekki en foreldrar hans eru báðir tónlistarkennarar þannig að hann er alinn upp við tónlist. Línus Orri hefur verið mjög virkur í þjóðlagatónlist á höfuðborgarsvæðinu og á Siglufirði og elskar þegar tónlistin sprettur fram eins og lífrænt flæði í daglegu lífi. Línus Orri gaf út plötu 2014 sem heitir Songs From Your Collarbone með hljómsveitinni Myndra.