1-1-2 dagurinn á Ólafsfirði

Við hjá Björgunarsveitinni Tind ætlum að opna hjá okkur húsið á milli 17:00 - 19:00 að Námuvegi 2 á Ólafsfirði á 1-1-2 deginum þann 11. Febrúar.

Slysavarnadeildinn Hyrna verður með kaffi og vöfflur.
 
Lögreglan kemur til okkar ásamt sjúkraflutningamönnum fra HSN. Slökkvilið Fjallabyggðar verður einnig á staðnum og munu slökkviliðsmenn sýna hvernig þeir klippa bíl fyrir utan hjá okkur.
 
Hlökkum til að sjá sem flesta!.