Fréttir

Vetrarstarf Dagþjónustu aldraðra Siglufirði er hafið

Minnum á að vetrarstarf Dagþjónustu aldraðra er hafið af fullum krafti Dagskrá alla daga frá kl. 9:00 til 15:00. Leikfimi, föndur, spil, bingó, boccia, vatnsleikfimi og bæjarferðir. Heiti potturinn í sjúkraþjálfun er opin frá kl. 8:30 - 9:15 þriðjudaga og fimmtudaga.
Lesa meira

Tónleikar með Helgu Bryndísi í Siglufjarðarkirkju

Fimmtudagskvöldið 25. september, mun Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari, halda tónleika í Siglufjarðarkirkju og hefjast þeir klukkan 20:00 
Lesa meira

Ljóðahátíðin Glóð

Dagana 25.-27. september standa Umf Glói og Félag um Ljóðasetur Íslands saman að ljóðahátíðinni Glóð á Siglufirði
Lesa meira

Baldur Ævar og Þór heiðraðir

Formleg móttaka Baldurs Ævars, ólympíufara var sl. föstudag. Einnig var Þór Jóhannsson heiðraður fyrir sína þátttöku á Special Olympics sl. haust, þar sem hann keppti í golfi.
Lesa meira

Vika símenntunar 22.-28. september

Af því tilefni munu símenntunarmiðstöðvar á svæðinu koma til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar.
Lesa meira

Framhaldsskóli við utanverðan Eyjafjörð

Af http://www.dagur.net Skólinn veður settur á laggirnar. Skíða- og útilífsbraut og sjávarútvegsbraut freistandi kostir að mati fundarmanna í Dalvíkurskóla Framhaldsskóli verður settur á laggirnar við utanverðan Eyjafjörð, hann er kominn á fjárlög ríkisins og verður á forræði Héraðsnefndar Eyjafjarðar líkt og MA og VMA.  Það er aftur á móti spurning hvort hann byrjar starfsemi sína haustið 2009 eða 2010.  Áætlanir gera ráð fyrir að hann hefjist haustið 2009 hins vegar er ljóst að húsnæði á Ólafsfirði verður ekki komið fyrir þann tíma.  
Lesa meira

Vika símenntunar 22.-28. september

Vika símenntunar verður 22. til 28. september nk. Markmið með viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2008 er lögð áhersla á fræðslu í fyrirtækjum og sem fyrr að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun. SÍMEY – Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar - mun standa að ýmiss konar kynningarstarfsemi í vikunni og verður dagskráin kynnt nánar er nær dregur.
Lesa meira

Móttaka Baldurs Ævars Ólympíufara

Eins og kunnugt er þá hefur Baldur Ævar Baldursson verið í Kína að taka þátt í Ólympíuleikum fatlaðra. Hann kemur til Ólafsfjarðar í dag föstudag, og ætlum við að taka á móti honum í Tjarnarborg kl. 17:00. Við hvetjum sem flesta til að koma og heiðra þennan unga afreksmann með nærveru ykkar. Léttar kaffiveitingar verða á staðnum. Allir velkomnir. 
Lesa meira

Opið hús á Leikhólum

Opið hús verður á Leikhólum þriðjudaginn 23. september frá 13:00 – 18:00. Allir velkomnir að skoða nýja leikskólann. Börn og starfsfólk Leikhóla.
Lesa meira

Ársþing SSNV á Siglufirði

16. ársþing SSNV verður haldið á Siglufirði föstudaginn 19. september. Þetta er síðasta ársþingið SSNV sem Fjallabyggð tekur þátt í, þar Fjallabyggð mun framvegis starfa innan Eyþings.
Lesa meira