Fréttir

Bleiki dagurinn 13. október 2017

Bleiki dagurinn verður haldinn hátíðlegur föstudaginn 13. október 2017 Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár í hinum bleika októbermánuði. Þennan dag hvetjum við alla landsmenn til að sýna samstöðu, klæðast bleiku og hafa bleikt í fyrirrúmi. Taktu föstudaginn 13. október frá! Föstudagurinn 13. október er Bleiki dagurinn. Hvernig væri nú að skipuleggja bleikt kaffiboð í vinnunni eða heima fyrir? Einnig er tilvalið að klæðast bleikum fötum í tilefni dagsins. Við hvetjum alla til að senda okkur skemmtilegar, bleikar myndir af sér og vinahópum eða vinnufélögum á netfangið bleikaslaufan@krabb.is og munum við birta þær hjá okkur á facebooksíðu Bleiku slaufunnar. Merkið myndirnar #bleikaslaufan Ef að fyrirtæki vilja styrkja Bleiku slaufuna þennan dag þá lumum við á ýmsum skemmtilegum hugmyndum hér .
Lesa meira

Skíðasvæðið Skarðsdal opnar þann 1. desember

Félagarnir á skíðasvæði Siglufjarðar, Skarðsdal, hafa ákveðið að opna skíðasvæðið þann 1. desember nk. Engin hækkun verður á lyftumiðum og vetrarkortum frá því í fyrra.
Lesa meira

Síldarminjasafnið hlaut Um­hverf­is­verðlaun Ferðamála­stofu

Um­hverf­is­verðlaun Ferðamála­stofu hafa verið veitt ár­lega frá ár­inu 1995 og var þetta því í 23. sinn sem þau voru af­hent en að þessu sinni hlaut Síldarminjasafnið ­verðlaunin fyr­ir fegr­un um­hverf­is og bætt aðgengi. Anita Elefsen safnstjóri og Örlygur Kristfinnsson forveri hennar tóku á móti verðlaununum á Ferðamálaþingi í Hörpu.
Lesa meira

Líkamsræktin á Siglufirði verður lokuð næstu helgi

Líkamsræktin á Siglufirði verður lokuð vegna bridge-móts eftirfarna daga: Föstudaginn 6. október, Laugardaginn 7. október Sunnudaginn 8. október Athugið að sundlaugin verður opin samkvæmt venju.
Lesa meira

Tökur hefjast á Ófærð 2 á Siglufirði

Tökur á annarri sjónvarpsþáttaröðinni af Ófærð hefjast á Siglufirði þann 14. október nk. Vinna við upptökur krefst m.a. þess að götum og bílastæðum verði lokað tímabundið og leikmynd verði komið upp þar sem hún þjónar tilgangi sögunnar. Þá hefur bæjarráð gefið sérstakt leyfi til þess að loka bílastæðum við ráðhústorg tímabundið, til þess að setja dautt fé á ráðhústorgið og til þess að fjarlægja málningu af stæði fyrir hreyfihamlaða við Ráðhúsið en það yrði málað aftur að upptökum loknum. Íbúar Fjallabyggðar verða upplýstir um gang mála í formi dreifibréfa og eða á samfélagsmiðlum meðan á tökum stendur.
Lesa meira

Athafnalóðir á Siglufirði lausar til umsóknar

Lausar eru til umsóknar athafnalóðir við hafnarsvæðið á Siglufirði. Í nýju deiliskipulagi svæðisins er gert ráð fyrir tveimur athafnalóðum (A og B) með möguleika á stækkun til norðurs (C). Um er að ræða áhugaverða staðsetningu fyrir hafnsækna starfsemi, innlenda og erlenda, t.d. frystigeymslur, fiskvinnslu eða útgerð. Árið 2016 voru gerðar gagngerar endurbætur á Hafnarbryggju sem stendur sunnan við athafnalóðirnar. Þá var nýr viðlegukantur byggður og innsigling og hafnarsvæði dýpkuð. Nú geta skip sem eru allt að 250 m. löng og með 9,5 m. djúpristu lagst þar að bryggju. Möguleiki er á lengingu viðlegukants til norðurs. Stærðir lóðanna samkvæmt gildandi aðal- og deiliskipulagi eru eftirfarandi.
Lesa meira

Betri Fjallabyggð - Aðalskipulag Fjallabyggðar 2008-2028

Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt að auglýsa skipulags- og matslýsingu fyrir endurskoðun á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028. Bæjarbúar eru hvattir til að kynna sér lýsingu þessa en þar koma m.a. fram áherslur sveitarstjórnar við skipulagsgerðina. Með gerð og kynningu lýsingar í upphafi verks er almenningi og umsagnaraðilum gefinn kostur á því að leggja fram sjónarmið og ábendingar sem að gagni gætu komið við gerð skipulagsins.
Lesa meira

Heilsufarsmælingar í Fjallabyggð

Í tengslum við forvarnarverkefni SÍBS Líf og heilsa um heilbrigði og lífsstíl verður íbúum Fjallabyggðar boðið uppá ókeypis heilsufarsmælingu í samstarfi við heilsugæsluna og Fjallabyggð. Mældur er blóðþrýstingur, blóðfita, blóðsykur, súrefnismettun og fleira, auk þess sem þátttakendum er boðið að taka þátt í könnun um lífsstíl og heilsufar sem snertir á flestum áhrifaþáttum heilbrigðs lífs.
Lesa meira

Á allra vörum

Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 26. september sl. að styrkja verkefnið Á allra vörum um 100.000 kr. Í ár styður verkefnið við Kvennaathvarfið og uppbyggingu þess á íbúðum fyrir konur og börn sem hafa ekki í nein hús að vernda að lokinni dvöl þeirra í athvarfinu Á allra vörum hefur notið stuðnings fjölda fólks og fyrirtækja í gegnum árin.
Lesa meira

Farskóla safnmanna á Siglufirði

Um 150 íslenskir safnmenn og félagar í FÍSOS, Félagi íslenskra safna og safnamanna, halda í dag miðvikudaginn 27. september árlegan Farskóla safnamanna á Siglufirði undir yfirskriftinni "Söfn í stafrænni veröld". Á sama tíma verður aðalfundur félagsins.
Lesa meira