Fréttir

Svæðisskipulag Eyjafjarðar

Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar hefur þann 31. mars 2020 samþykkt tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012-2024 vegna flutningslína raforku. Breytt stefna Svæðisskipulags Eyjafjarðar 2012-2024 um flutningslínur raforku er árétting þeirrar stefnu, sem sett var fram í svæðisskipulaginu á sínum tíma en nokkuð ítarlegri. Breytingin á við Blöndulínu 3 og Hólasandslínu 3.
Lesa meira

Kjörfundur vegna forsetakjörs 2020

Við kjör til forseta Íslands, er fram fer laugardaginn 27. júní 2020, er skipting í kjördeildir í sveitarfélaginu Fjallabyggð sem hér segir:
Lesa meira

Kjörskrá í Fjallabyggð 2020

Kjörskrá í Fjallabyggð vegna forsetakosninganna þann 27. júní 2020 liggur nú frammi til sýnis í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, frá kl. 9:30-15:00 og mun liggja frammi alla virka daga fram til 27. júní. Kjósendum er einnig bent á vefinn www.kosning.is en þar má finna hvar kjósendur eru á kjörskrá. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskránni. Athugasemdum við kjörskrá skal beina til bæjarráðs Fjallabyggðar.
Lesa meira

Fögnum 17. júní heima

Eins og fram hefur komið hefur hátíðarhöldum vegna 17. júní verið aflýst í Fjallabyggð vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Því fögum við deginum á óvenjulegan og öðruvísi máta, ekki með hefðbundinni sameiginlegri bæjarhátíð.
Lesa meira

Gjöf til ferðalaga innanlands

Skilaboð frá Ferðamálastofu vegna Ferðagjafar til fyrirtækja í ferðaþjónustu. Búið er að opna fyrir skráningu fyrirtækja vegna Ferðagjafar á https://ferdagjof.island.is/
Lesa meira

188. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar 16. júní kl. 17:00

188. fundur Bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði, 16. júní 2020 og hefst kl. 17:00
Lesa meira

Garðsláttur fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja í Fjallabyggð

Garðsláttur fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja í Fjallabyggð. Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykk að bjóða upp á garðslátt á vegum þjónustumiðstöðvar Fjallabyggðar fyrir örorku- og ellilífeyrisþega með lögheimili í bæjarfélaginu. Gjald fyrir hvern slátt er 7.600, kr- á lóð undir 150m2 og 12.800, kr- á lóð yfir 150m2
Lesa meira

Tímabundin 50% staða íþróttakennara laus fyrir næsta skólaár

Grunnskóli Fjallabyggðar auglýsir 50% stöðu íþróttakennara á yngra stigi í starfsstöð skólans á Siglufirði. Ráðningin er tímabundin til eins árs vegna forfalla.
Lesa meira

Kaldavatnslaust í norðurbæ Siglufjarðar í kvöld 11. júní

Kaldavatnslaust verður í norðurbæ Siglufjarðar í kvöld 11. júní. Vegna vinnu við bilun í vatnsveitu verður vatnslaust í norðurbæ Siglufjarðar frá kl. 20:00 í kvöld 11. júní og fram eftir kvöldi. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum og truflun sem þetta mun valda.
Lesa meira

187. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

187. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn þann 11. júní 2020 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði.
Lesa meira