30.07.2020
Veisluhöldum vegna 75 ára kaupstaðarafmæli Ólafsfjarðar sem halda átti laugardaginn 1. ágúst nk. hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna breyttra aðstæða í samfélaginu.
Afmælið verður haldið um leið og slakað verður á fjöldatakmörkunum á ný og aðstæður breytast.
Lesa meira
29.07.2020
Eftir viðamiklar endurbætur á húsinu verður "Ólafsfjarðarstofa" efri hæð Pálshúss formlega opnuð þann 1. ágúst kl. 13:30. Á sama tíma opna Sigtryggur Bjarni Baldvinsson myndlistarmaður og Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður samsýninguna "Hljómur úr firði - Litir frá J.S.Bach" í sýningarsalnum.
Lesa meira
29.07.2020
190. fundur Bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði, 31. júlí 2020 og hefst kl. 12:00
Lesa meira
28.07.2020
Í tilefni af 75 ára kaupstaðarafmæli Ólafsfjarðar þann 1. janúar s.l. býður Fjallabyggð íbúum og öðrum gestum til kaffisamsætis, undir berum himni í Strandgötunni Ólafsfirði (gegnt Pálshúsi) laugardaginn 1. ágúst frá kl. 14:30-17:00. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna.
Lesa meira
27.07.2020
Berjadagar tónlistarhátíð um Verslunarmannahelgi hefst 30. júlí kl. 20:00 og stendur til sunnudagskvölds 2. ágúst. Nokkrir af fremstu tónlistarmönnum landsins koma fram í Ólafsfjarðarkirkju og Menningarhúsinu Tjarnarborg.
Hátíðin endurspeglar "náttúru og listsköpun" í fjóra daga með tónleikum, myndlistarsýningum, náttúruskoðun, heimspekikvöldi og grilli fyrir bæjarbúa úti undir berum himni! Hæst ber að nefna að Elja kammersveit og Hundur í óskilum eru með tónleika á hátíðinni. Í tilefni af 250 ára ártíð L.v.Beethoven verður upphafskvöld óhefðbundið að þessu sinni og er tileinkað ,heimspeki´ í Skíðaskálanum með Jóni Thoroddsen. Eftir það fer boltinn að rúlla með glæsilegum tónleikum föstudag kl. 20, Kammersveitin Elja undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar, Óperutónleikum við tjörnina laugardaginn 1. ágúst kl. 20, hádegiskonsert og síðar Hátíðarkvöldi í Ólafsfjarðarkirkju sunnudaginn 2. ágúst.
Lesa meira
27.07.2020
Árleg listasmiðja barna og aðstandenda þeirra við Alþýðuhúsið á Siglufirði fer fram fimmtudaginn 30. júlí nk. frá kl. 13:00-15:00. Smiðjan verður við Alþýðuhúsið á Siglufirði ef VEÐUR LEYFIR.
Leiðbeinandi er Aðalheiður S. Eysteinsdóttir. Vinsamlegast athugið að senda ekki börnin án umsjónar og komið með hamra ef möguleiki er.
Lesa meira
27.07.2020
Sýningin Snertur af náttúrunni verður opnuð í Segli 67 á Siglufirði, föstudaginn 31. júlí nk. 17:00-20:00
Þrír myndlistarmenn, Aðalsteinn Þórsson, Joris Rademaker og Þóra Sólveig Bergvinsdóttir, eru öll búsett í Eyjafirði. Þau mætast í Segull 69, tómu verksmiðjurými á Siglufirði. Þau hafa öll verið starfandi myndlistarmenn í lengri tíma og haldið margar einka- og samsýningar víða. Það sem tengir þau saman er áhugi þeirra á náttúrunni, endurvinnslu, náttúruvernd og sjálfbærni. Náttúran er efniviður þeirra í mismunandi listformum s.s. gjörningum, skúlptúrum, innsetningum, videóum og málverkum.
Opnun föstudagskvöld 31. júlí kl. 17.00-20.00
Í Segull 67, Vetrarbraut 8-10, Siglufirði
Opnunartími:
Laugardaga 01.08, 08.08 og 15.08
Sunnudaga 02.08, 09.08 og 16.08
Styrktaraðilar eru:
Segull 67
Alþýðuhúsið á Siglufirði
Uppbyggingarsjóður Eyþings
Lesa meira
27.07.2020
Föstudaginn 31. júlí kl. 14.00 - 17.00 opnar Sigtryggur Bjarni Baldvinsson sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði sem ber yfirskriftina “Eftir regnið – 14. ágúst 2019”.
Sýningin er opin daglega frá kl. 14.00 - 17.00 þegar skilti er úti og stendur til 16. ágúst.
Lesa meira
27.07.2020
Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar auglýsa opnun um Verslunarmannahelgi 1. - 3. ágúst 2020.
Lesa meira
23.07.2020
Síðasti dagur smíðavalla Fjallabyggðar var í dag. Börnin mættu og nutu veitinga þrátt fyrir rigningarsudda og drógu foreldra eða ömmur og afa með sér. Sumir kofaeigendur buðu gestum upp á smákökur og annað góðgæti.
Lesa meira