09.02.2022
Vegna veðurs og snjóa hefur sorphirða farið úr skorðum þessa vikuna. Losun hefst um leið og veður gengur niður og hreinsun gatna er lokið.
Eru íbúar vinsamlegast beðnir um að moka frá ílátum sem eru flest á kafi og tryggja aðgengi að þeim.
Lesa meira
08.02.2022
Tónlistarveisla til styrktar Björgunarsveitinni Stráka á Siglufirði í tilefni af 112 deginum. Fram koma tónlistarmenn frá Fjallabyggð. Allur ágóði af tónleikunum rennur að þessu sinni til styrktar kaupum á fullkomnum leitar- og björgunardróna
Lesa meira
07.02.2022
Bæjarstjórn Fjallabyggðar
210. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í fjarfundi miðvikudaginn 9. febrúar 2022 kl. 17.00.
Lesa meira
07.02.2022
Búið er að opna sundlaugina og heitu pottana í Ólafsfirði og verður opið skv. áætlun til kl. 19:00 í dag.
Í hádeginu var einungis hægt að opna ræktina í Ólafsfirði en nú er búið að opna bæði sundlaug og heitu pottana. Erfiðlega gekk að taka dúk af sundlauginni vegna vinds og snjóa og sömuleiðis þurfti að ná upp hita í heitu pottunum.
Lesa meira
07.02.2022
Ákveðið hefur verið að opna Leikskóla Fjallabyggðar kl. 13:00 í dag mánudagin 7. febrúar.
Lesa meira
07.02.2022
Íþróttamiðstöðvar verða opnaðar á ný í hádeginu eftir lokanir í morgun vegna veðurs.
Einungis verður opið í ræktinni í Ólafsfirði frá kl. 12:00-19:00. Sundlaug verður lokuð í dag og pottar fram eftir degi.
Sundlaug og rækt á Siglufirði opna kl. 12:00 - 19:45
Lesa meira
06.02.2022
Eins og fram hefur komið í fréttum er von á ofsaveðri á landinu á morgun mánudaginn 7. febrúar og hefur Veðurstofa Íslands gefið út appelsínugula viðvörun fyrir Norðurland eystra frá klukkan sex að morgni og fram að hádegi. Spáð er suðaustan 20-28 m/s með snjókomu og skafrenningi, hvassast á Tröllaskaga og í Eyjafirði. Talsverðar líkur á foktjóni og samgöngutruflunum.
Lesa meira
04.02.2022
Í frétt um styrkveitingar Fjallabyggðar árið 2022 misritaðist ein upphæð ásamt heildarupphæð þjónustusamninga við íþróttafélög um rekstur á íþróttasvæðum í eigu sveitarfélagsins
Lesa meira
03.02.2022
Gerjun og gróska á svæðinu okkar - Rafræn úthlutunhátíð í dag kl. 12:00
Umsóknirnar voru afar fjölbreyttar og án efa bæði fróðlegt og skemmtilegt að sjá hvaða verkefni hljóta styrk í ár, hvaða gerjun og gróska á sér stað á svæðinu okkar.
Lesa meira