Viðburðadagatal fyrir aðventu og jól – sendið okkur upplýsingar

Aðventan og jólin eru notalegur tími í Fjallabyggð og á hverju ári er fjölbreytt dagskrá í boði víðs vegar um sveitarfélagið. Undanfarin ár hefur Fjallabyggð tekið saman og gefið út viðburðadagatal fyrir aðventuna og jólin þar sem íbúar og gestir geta á einum stað kynnt sér það sem er um að vera í aðdraganda jólanna.

Í dagatalinu er meðal annars birt dagskrá verslunar- og þjónustuaðila, félagasamtaka, safna og setra, skóla, kirkjunnar og annarra sem standa fyrir viðburðum, samveru eða annarri dagskrá á aðventunni.

Við hvetjum alla sem standa fyrir viðburðum í Fjallabyggð á aðventunni og í aðdraganda jóla til að senda okkur upplýsingar og taka þátt í dagatalinu.

Í upplýsingum þurfa að koma fram:

  • heiti og stutt lýsing á viðburði

  • dagsetning og tímasetning

  • staðsetning

  • tengiliður eða nánari upplýsingar, ef við á

Birting í viðburðadagatalinu er án endurgjalds. Dagskráin verður birt á vef Fjallabyggðar og kynnt eftir því sem við á á miðlum sveitarfélagsins.

Upplýsingar skal senda á hannasigga@hatindur.is  fyrir 11. nóvember.