Verum Viðbúin

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út bæklinginn Verum viðbúinn, sem ætlað er að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins.

Í bæklingnum Verum viðbúin er að finna hagnýtar upplýsingar um hvernig einstaklingar og fjölskyldur geta undirbúið sig fyrir aðstæður þar sem daglegu lífi er raskað og hvert leita megi upplýsinga.

Á undanförnum árum hefur, líkt og víða á Norðurlöndum, verið lögð aukin áhersla á viðbúnað almennings og mikilvægi þess að fólk sé upplýst og undirbúið til að takast á við óvæntar aðstæður.

Bæklingurinn hefur verið sendur rafrænt til allra íbúa 18 ára og eldri í gegnum island.is. Á næstu dögum verður prentaðri útgáfu bæklingsins dreift af björgunarsveitum um land allt í tengslum við sölu á Neyðarkallinum. Bæklingurinn er einnig aðgengilegur á verumvidbuin.is á ensku og pólsku.

Jafnframt er efnið aðgengilegt á íslensku táknmáli og á auðlesnu máli.

Ef fleiri spurningar kunna að vakna má skoða Spurt og svarað, sem ætlað er til stuðnings við upplýsingagjöf.

Íbúar eru hvattir til að kynna sér efni bæklingsins til að stuðla að auknum viðbúnaði og öryggi.