Verkefnið Virkjum íbúana

SSNE auglýsir eftir verkefnahugmyndum undir yfirskriftinni „Virkjum íbúana“ þar sem markmiðið er að efla samveru, virkni og þátttöku íbúa á Norðurlandi eystra. Umsóknarfrestur er til 29. október 2026.

Verkefnið miðar að því að nýta betur samfélagshús og aðra samkomustaði, svo sem félagsheimili, bókasöfn, skóla og íþróttamannvirki, og skapa þar lifandi vettvang fyrir félagsstarf, menningu, fræðslu og samveru.

Áhersla er lögð á verkefni sem byggja á þörfum nærsamfélagsins, hvetja ólíka hópa til þátttöku og stuðla að sterkari tengslum milli íbúa og kynslóða. Hugmyndirnar geta verið fjölbreyttar, allt frá nýju félagsstarfi og viðburðum til verkefna sem stuðla að betri nýtingu húsnæðis og auknu samstarfi í samfélaginu.

Hugmyndir íbúa skipta máli

Sveitarfélög og stofnanir þeirra geta sótt um stuðning til að hrinda verkefnum í framkvæmd. Félagasamtök, íbúahópar og einstaklingar geta verið samstarfsaðilar og eru hvattir til að koma hugmyndum sínum á framfæri.

Við val á verkefnum verður meðal annars horft til þess hvort þau stuðli að virkri þátttöku, séu opin og aðgengileg, mæti þörfum íbúa og geti haft jákvæð og varanleg áhrif á samfélagið.

Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar

Frestur til að skila inn verkefnahugmyndum er 29. október 2026.

 Verkefnahugmyndum er skilað rafrænt í gegnum umsóknareyðublað á heimasíðu SSNE:

Sækja um – Virkjum íbúana (SSNE)

Athygli er vakin á því að eingöngu sveitarfélög á Norðurlandi eystra og stofnanir þeirra geta verið formlegir umsækjendur, en félagasamtök, íbúahópar og einstaklingar geta komið að verkefnum í samstarfi við sveitarfélögin.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við verkefnastjóra SSNE, Díönu Jóhannsdóttur og Elvu Gunnlaugsdóttur, til að ræða hugmyndir og möguleika á þátttöku.